Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

yaf
yaf Notandi frá fornöld 88 stig

My bloody valentine - loveless (18 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Platan Loveless með My bloody valentine er að mínu mati ein af betri plötum sem gerðar hafa verið og ég ætla hér á eftir að rekja sögu sveitarinnar stuttlega og hina stórmerkilegu sögu af því hvernig þessi áhrifamikla plata varð til. Kevin Shields (Gítar/söngur/lagahöfundur&Colm O´Ciosoig stofnuðu hljómsveitina My bloody valentine árið 1984 en þeir höfðu áður verið saman í hljómsveit sem kallaðist Complex. Þeir fengu til liðs við sig tvo meðlimi þau Dave Conway og Tinu, fluttu til Berlínar...

Lúna (15 álit)

í Rokk fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Fyrsta plata hljómsveitarinnar Lúna var að koma út rétt í þessu (20.ágúst) á vegum smekkleysu. Hún heitir Lefðu mér að þegja þögn þinni og er fáanleg í öllum betri plötuverslunum. Útgáfuto´nleikar verða síðan haldnir á föstudahskvöldið(24.ágúst) í Tjarnarbíói og þar opnar húsið kl 20:00 með léttum fordrykk og tónleikarnir og tónleikarnir byrja fljótlega eftir það. Miðaverð er 1000 kr og fer forsala miða fram í hljómalind. Ég vil einnig minna á að allar nánari upplýsingar um hljómsveitina má...

Tónlistar menn sameinist!!!!!!!!. (30 álit)

í Hljóðfæri fyrir 23 árum, 1 mánuði
Í lagardagsblaði moggans(31.3) er grein sem fjallar um æfinga húsnæðið sem er í Mjölnisholti, og deilurnar milli fólksisns sem býr í nágrenni við húsnæðið og eigananda þess. Þetta er eitt af fáum æfingahúsnæðum fyrir hljómsveitir hér í borg,og er ég viss um að það kæmi sér illa fyrir marga unga tónlistarmenn ef æfingarhúsnæðum fækkar enn frekar. Ég skil reyndar málstað fólksins sem vill húsnæðið í burtu mæta vel. Það er örugglega ekki gaman að búa þarna í nágrenni við húsið. Málið er...

Hugsanir (0 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Hugsanir mínar eru gruggugri en baðvatnið. Ég get ekki staðið upp úr þeim. Vatnsborðið hækkar stöðugt. Það er ómögulegt að stöðva rennslið. Ég held fyrir munninn, svo ekkert leki út.

Ferðalagið (4 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég fór í ferðalag, en var samt aldrei samferða sjálfum mér. Ég gekk á undan mér, í gegn um hverja stórborgina á fætur annarri. Ég kom aftan að mér, þar sem ég stóð og mótmælti dauðarefsingu minni. Ég týndi sjálfum mér, og ráfaði einn um frumskóga í leit að spegilmynd minni. Ég er ekki enn komin heim, en sit samt við einn við borð og bíð eftir mér.

Citizen cam (myndavélarnar í borginni) (6 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Eins og flestir vita er búið að koma fyrir myndavélum á fjölmörgum stöðum í Reykjavíkurborg. Þessar vélar þjóna tvennum tilgangi, annarsvegar er um að ræða vélar sem taka myndir af ökutækjum sem fara yfir á rauðu ljósi og hinsvegar myndbandsupptökuvélar, staðsettar í miðbænum í þeim tilgangi að festa á filmu þau afbrot sem þar gerast (innbrot,líkamsárásir,nauðganir og e.t.v. fleira). Þessar myndavélar þjóna vissum tilgangi og hafa verið notaðar myndir og upptökur úr þeim í ýmsum dómsmálum....
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok