Ég held að fólk sem vill lögleiða kannabis efni geri sér ekki grein fyrir því hversu mikil böl hass er.

Hass er mjög lúmskt efni. Það virðist hættulaust en það veldur bara hægari skaða en önnur vímuefni. Ef þið spáið í það þá hafa hasshausar allir <b>sömu persónueiginleikana</b>.
Ekki misskilja mig þið sem eruð með lögleiðingu og allt það, það er mjög gott að vera freðinn en þið sem ekki hafa fengið að gjalda fyrir það ennþá (að reykja s.s.) þá mun sá dagur koma því hass veldur geðveiki. Það er ekkert dýrmætara en geðheilsan og það þarf bara hass til að senda fólk á klepp. Sem dæmi þá eru komin 3 ár síðan ég hætti að reykja og ég er ennþá að gjalda fyrir það.

Að lögleiða þetta væri bara bull, en ég er á því að þeir sem eru teknir með 1-2 búta á sér verði látnir í friði. Það eru aðrir hlutir sem lögreglan á að einbeita sér að en það þarf miklu meiri fræðslu um kannabis efni það sýnir sig bara á umræðunum hérna.

Takk fyrir áheyrnina,
Raven