Þetta er svo bara vegna þess að það var Verzló sem gerði þetta lag… Ef þú vissir ekki að þetta væri Verzló þá værirðu ekki svona mikið á móti þessu. Mér finnst þetta bara frekar vel íslenskað og engan veginn verið að skemma lagið, enda ekki það mikið í spilun að þú hafir tækifæri til að láta það fara í taugarnar á þér. Og svona til að hafa það á hreinu þá heitir skólinn Verzlunarskóli Íslands, með zetu svo það á að skrifa Verzló ef þú ætlar að hafa það rétt.