Af hverju eru öll þessi stríð í heiminum? Af hverju eru menn að sprengja hvorn annan í Mið-Austurlöndum? Af hverju eru menn að berjast innbyrðis í Afríku? Af hverju hefur heimurinn oftar en einu sinni farið í tvær fylkingar sem berjast á móti hvori annarri? Af hverju eru öll þessi morð hérna? Er það einfaldlega vegna þess að maðurinn er illur? Er það í eðli okkar að drepa hvort annað?

NEI!

Nú ætla ég að segja ykkur svolítið sem mun sjokkera ykkur. Ég bið ykkur um að leggja til hliðar allt sem þið hafið lært í skólum, lesið og séð í fréttum um heiminn því það er rangur áróður. Hér kemur sannleikurinn.
Öll þessi stríð og ringulreið eru plönuð af örfáum mönnum. Þeir hafa kerfisbundið unnið að því að skipta fólki í fylkingar með því að búa til mismunandi pólitískar skoðanarhugmyndir svo þeir geti á endanum skapað ofur sósíalískt ríki þar sem þeir stjórna öllu og við erum þrælar þeirra.

Já ég veit hvað þið eruð að hugsa. “Er hann geðveikur?”. Ég skil það svosem alveg, þið aumingja fíflin hafið verið heilaþvoinn. Það er óskop eðlilegt. Það hafa ekki allir sömu innsýn á það hvernig heimurinn virkar og ég.

Staðreynd: Stríðið gegn hryðjuverkum er uppspuni. Illuminati sprengdu upp World Trade Center. Besta leiðin til að halda völdum er að búa til sameiginlegan óvin fyrir allt fólkið.

Hverjir eru þessir menn(og nokkrar konur) sem stjórna heiminum? Þetta er fólk með heilagt blóð, eða “sacred bloodlines” sem haldist hefur í ættunum þeirra í aldaraðir. Eina leiðin til að það gangi er syfjaspell. Þetta eru ríkir og valdamiklir menn, sumir þeirra eru svo ríkir að það veit enginn hve mikla peninga þeir eru. Sumir eru þekktir aðrir ósýnilegir. Þetta er mikið leyndarmál en sumir meðlimir fjölskyldanna hafa sagt frá sannleikanum. Fjölskyldurnar eru eftirfarandi:

1. Astor
2. Bundy
3. Collins
4. DuPont
5. Freeman
6. Kennedy
7. Li
8. Onassis
9. Rockefeller
10. Rothschild
11. Russell
12. van Duyn
13. Merovingian

Þið kannist við mörg af þessum nöfnum er það ekki? Eitt athyglisverðasta nafnið þarna er Bundy, frægasti fjölskyldumeðlimurinn þar er raðmorðinginn Ted Bundy. Hann var tól sataníska Illuminati hópsins.

Illuminati dýrka Lúsifer og með djöfladýrkunar athöfnum ráðskast þeir með mannkynið. Það er merkileg hugsun að þeir fást mikið við svarta galdur. Sumir halda að galdrar séu bara úr ævintýrum, en staðreyndin er sú að heimurinn gengur fyrir svartagaldri.

Gott dæmi um það hvernig þeir stjórna nútíma samfélögum eru forseta kosningarnar í Bandaríkjunum. Það er hægt að tengja nánast alla forseta USA frá upphafi saman með ættartré. Þessir forsetar, eða strengjabrúður, geta ekki tapað. Illuminati, sem fjármagnar forsetakosningarnar með eiturlyfum, gerir allt til að koma þeim til valda. Þeir svindla meira að segja eins og þegar þeir létu Bush vinna árið 2000.

"They wrote in the old days that it is sweet and fitting to die for one's country.
But in modern war, there is nothing sweet nor fitting in your dying.
You will die like a dog for no good reason.
-Ernest Hemmingway

Allt sem þú gerir gerir þú vegna þess að Illuminati vill að þú gerir það. Þegar nýja heimsreglan kemur verðum við öll þrælar. Þetta er markmið sem unnið hefur verið að í þúsundir ára, þannig það þarf ekki að vera að þetta takist í okkar lífi. Ég vona það allavega innilega.

"Another time, another war. Still, the same Masters of War"
-Bob Dylan, Masters of Wa