Ég var einmitt að kaupa mér þennan disk um daginn. Ég er sammála þér, hann er frábær. Mér finnst, Mojo Pin, So real og Hallelujah bestu lögin. Það var Leonard Cohen sem flutti það upphaflega. Smá leiðrétting, Jeff Buckley drap sig ekki, hann drukknaði. Pabbi hans, tónlistarmaðurinn Tim Buckley, dó líka ungur. Hann tók inn heróín, hélt það væri kókaín og dó.