Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

trommumagi
trommumagi Notandi síðan fyrir 20 árum, 7 mánuðum Karlmaður
228 stig

Nýtt deildarfyrirkomulag í NBA (11 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Á mánudaginn samþykkti stjórn NBA-deildarinnar tillögur um breytingu á fyrirkomulagi deildarinnar. Ástæða þess er sú að liðunum verður fjölgað á næsta ári, 30. liðið, Charlotte Bobcats kemur inn í deildina. Eins og flestir vita var deildinni skipt í Austur- og Vesturdeild, og síðan tveir riðlar í hvorri deild. Í austrinu var Atlantshafsriðill(Atlantic) og Miðriðill (Central) en í vestrinu Kyrrahafs- (Pacific) og Miðvesturriðill (Midwest). Núna bætist hins vegar við í austrinu Suðausturriðill...

Andrei Kirilenko og Ron Artest leikmenn vikunnar (2 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Ron Artest leikmaður Pacers og Andrei Kirilenko leikmaður Jazz voru valdnir leikmenn vikunnar 3-9 nóv. Artest leiddi lið Pacers til fjögurra sigra, skoraði 22,5 stig, 6.0 fráköst og 3,3 stoðsendingar að mtl. í þessum fjórum leikjum. Kirilenko var með 18,5 stig, 7,5 fráköst, 2,3 stoðsendingar, 1,5 stolnir boltar og 3,0 varin skot að mtl. Aðrar tilnefningar sem leikmenn vikunnar voru: Allen Iverson - Sixers, Chauncey Billups - Pistons, Jason Richardson - GS Warriors, Steve Francis - Houston,...

Memphis vinnur Lakers (0 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Memphis Grizzlies sigraði Lakers óvænt í nótt 105-95. Þetta var annað tap Lakers í röð eftir að hafa unnið 5 fyrstu leikina. Bestur hjá Lakers var Shaq með 20 stig, 12 frá og 3 varin. Hjá Memphis átti Pau Gasol góðan leik, 22 stig og 11 frá. Önnur úrslit voru: Cleveland - New York 94-80 - LeBron James með 17 stig og A. Houston með 22 Chicago - Denver 97-105 - Carmelo Anthony með 26 stig og 8 frá. San Antonio - Utah 87-78 - Tim Duncan og Tony Parker spiluðu eftir meiðsli, Duncan ágætur, 16...

Keon Clark í uppskurð (0 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Keon Clark leikmaður Utah Jazz þarf að fara í uppskurð á ökkla og verður hann þar af leiðandi frá í 6-8 vikur. Clark verður að fara í uppskurð strax annars geta eymslin í ökklanum orðið langvarandi. Þess vegan var ákveðið að láta hann fara í uppskurð svona snemma á tímabilinu. Hinn 28 ára gamli Clark á að spila stórt hlutverk hjá Utah Jazz sem er enn að aðlagast lífinu án Karl Malone. Keon Clark sagði nokkur vel valin orð um þær vikur sem hann verður utan vallar„Ég hata að horfa á...

Leikir sunnudagsins (7 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Fimm leikir voru spilaðir í gær, ég ætla að skrifa aðeins um þá. Toronto Raptors tóku á móti Denver Nuggets og unnu, 89-76. Sigurinn var helst að þakka stórleik Vince Carter sem var með 34 stig, 10 frá og 6 sto. Nuggets skoruðu fyrstu körfuna en lengra komust þeir ekki. Raptors unnu 1. fjórðung 26-13 og héldu forystunni út leikinn. Hjá Denver var Andre Miller bestur, 18 stig, 11 frá og 8 sto. Carmelo Anthony náði ekki að fylgja eftir stórleik sínum á móti Clippers þar sem hann skoraði 30...

Hverjir vinna Intersport deildina í ár (0 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum

Seattle SuperSonics (18 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Fyrir stuttu datt einhverjum í hug að byrja að skrifa greinar um liðin í NBA deildinni. Góð hugmynd og hérna kemur fyrsta liðsgreinin mín og er hún um Seattle SuperSonics. Fyrstu árin Sonics var hleypt inn í NBA deildina fyrir tímabilið 1967-68 ásamt Houston Rockets (þá San Diego Rockets). Þeir byrjuðu ekki vel og töpuðu fyrsta leiknum 144-116 og enduðu með næst slakasta árangurinn í deildinni á eftir Rockets, 23 sigrar - 59 töp. En næstu fjögur árin bættist árangurinn á hverju ári og...

Duncan meiddur (2 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Tim Duncan, leikmaður Spurs mun a.m.k. missa af einum leik eftir að hann snéri sig illa í leik Spurs og Memphis. Þetta gerðist í fyrsta leikhluta eftir 7 mínútur og staðan var 20-10 fyrir Spurs en eftir þetta misstu Spurs dampinn og töpuðu 80-88. Það sýnir hversu mikilvægur hann er fyrir þá og síðan er Tony Parker líka meiddur þannig að Spurs mun eiga erfiðan leik á móti Miami Heat í kvöld.

Haukar sigra KR í hópbílabikar kvenna! (1 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
2. deildar lið Hauka í kvennakörfunni sigraði í kvöld 1. deildar lið KR í hópbílabikar 70-63. Haukastelpurnar, sem duttu niður í aðra deild á seinasta tímabili voru miklu betri í fyrri hálfleik og unnu hann 39-26 en lentu í villuvandræðum snemma í þriðja leikhluta og KR minnkaði muninn í 6 stig en lengra komust þær ekki og leikurinn endaði 70-63. Hjá Haukum skoraði Helena Sverrisdóttir 38 stig, tók 14 fráköst og 5 stoðs(sem telst nú bara venjulegur leikur hjá henni), og Pálína M....

Lakers vinna Warriors - Kobe spilar vel (13 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Lakers tóku í nótt á móti Warriors og unnu með 15 stigum, 87-72. Þetta var samt enginn erfiðisleikur því að sterkustu menn Warriors, þeir Nick Van Exel og Jason Richardson voru ekki með og heldur ekki annar byrjunarliðsmaður, Troy Murphy.Byrjunarlið þeirra var þess vegna: C - Erick Dampier FF - Cliff Robinson SF - Mike Dunleavy SG - Calbert Cheaney PG - Speedy Claxton, sem átti ömurlegan leik, 1-8 í skotum og 3 stig Þetta er náttúrulega hræðilegt byrjunarlið, það segir nóg að Erick Dampier...

Lebron James byrjar vel (16 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Það virðist sem að LeBron James virðist ætla að standast pressuna sem sett hefur verið á hann. Hann er núna búinn að spila tvo leiki og hefur spilað vel í þeim báðum og verið besti leikmaður Cavaliers í þeim. Í fyrsta leiknum spiluðu þeir á móti Sacramento Kings og það virtist sem að LeBron væri sá eini sem að trúði því að þeir gætu unnið þennan leik. Hann barðist á fullu allan tímann og var með mjög góðan alhliða leik. Hann skoraði 25 stig hitti úr 12-22 í skotum og 1-3 í vítum. Hann tók 6...

Screen resolution (4 álit)

í Windows fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Fyrir stuttu setti ég XP pro upp í tölvunni minni, tek það fram að ég er með original útgáfu af XP, og síðan þá hef ég bara getað verið með 800x600 í screen resolution. Tölvan mín er K7 Athlon 2500XP, MSI K7N2G-L, 333FSB móðurborð, 512MB DDR333 Kingston minni, 80GB Harður diskur, GF4 MX 128MB innbyggt skjákort. Veit einhver hvað gæti verið að???

Til hamingju (2 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Til hamingju notendur þessa áhugamáls. Það má loksins aftur telja það “virkt” áhugamál eftir marga dapra mánuði þar sem 3-4 greinar hafa verið að koma á mánuði. Á seinustu tveimur vikum hafa komið 9 greinar og oftast eru 3 eða fleiri inni. Núna er bara að halda þessari virkni áfram og kannski að bæta einhverju við á síðuna, t.d. leikmann mánaðarins og/eða vikunnar og síðan að koma með nýjar triviur eins og voru í janúar og febrúar.

Þriðji leikur Jóns Arnórs (2 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Hetjan okkar allra, Jón Arnór Stefánsson spilaði sinn þriðja leik í nótt þegar Mavs vann SA Spurs 89 - 84. Jón spilaði í 6 mínútur, kom inn á í byrjun fjórða leikhluta en gerði samt ekki mikið. 0/0 í skotum og vítum, 1 sóknarfrákast, 1 stolinn bolti og 3 tapaðir. Marquis Daniels, aðal keppinautur Jóns um sæti í liðinu gekk aðeins betur, 8 stig, 1 frákast og 1 stolinn á 11 mín. Hérna er svo hvenær hann kom við í leiknum. 4th Period (11:11) [DAL] Steffansson Turnover: Lost Ball (1 TO) Steal:...

Tveir góðir í vetur (7 álit)

í Körfubolti fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Núna seinasta mánuð er ég búinn að fylgjast nokkuð vel með nokkrum efnilegum leikmönnum í NBA deildinni, skoða statsana hjá þeim í æfingaleikjunum og í sumardeildunum, skoða hvað þjálfarar og aðrir aðstandendur liðanna hafa að segja um þá og annað í þeim dúr. Þeir þrír leikmenn sem mér hefur sýnst hafa bætt sig mest frá seinasta tímabili eru þeir Kwame Brown, Washington og Eddy Curry sem spilar með Chicago. Ég ætla að skrifa eitthvað um þá. Kwame Brown: Kwame kom beint úr miðskóla og var...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok