Memphis Grizzlies sigraði Lakers óvænt í nótt 105-95. Þetta var annað tap Lakers í röð eftir að hafa unnið 5 fyrstu leikina. Bestur hjá Lakers var Shaq með 20 stig, 12 frá og 3 varin. Hjá Memphis átti Pau Gasol góðan leik, 22 stig og 11 frá.

Önnur úrslit voru:
Cleveland - New York 94-80 - LeBron James með 17 stig og A. Houston með 22
Chicago - Denver 97-105 - Carmelo Anthony með 26 stig og 8 frá.
San Antonio - Utah 87-78 - Tim Duncan og Tony Parker spiluðu eftir meiðsli, Duncan ágætur, 16 stig og 10 frá, en Parker átti lélegan leik.
Golden State - Phoenix 96-99 - Amare Stoudamire (PS) og Jason Richardson (GSW) góðir, Amare 15 og 18, Richardson 22 og 9.