Tim Duncan, leikmaður Spurs mun a.m.k. missa af einum leik eftir að hann snéri sig illa í leik Spurs og Memphis. Þetta gerðist í fyrsta leikhluta eftir 7 mínútur og staðan var 20-10 fyrir Spurs en eftir þetta misstu Spurs dampinn og töpuðu 80-88. Það sýnir hversu mikilvægur hann er fyrir þá og síðan er Tony Parker líka meiddur þannig að Spurs mun eiga erfiðan leik á móti Miami Heat í kvöld.