Keon Clark leikmaður Utah Jazz þarf að fara í uppskurð á ökkla og verður hann þar af leiðandi frá í 6-8 vikur. Clark verður að fara í uppskurð strax annars geta eymslin í ökklanum orðið langvarandi. Þess vegan var ákveðið að láta hann fara í uppskurð svona snemma á tímabilinu. Hinn 28 ára gamli Clark á að spila stórt hlutverk hjá Utah Jazz sem er enn að aðlagast lífinu án Karl Malone.

Keon Clark sagði nokkur vel valin orð um þær vikur sem hann verður utan vallar„Ég hata að horfa á körfubolta, sérstaklega ef ég er aðeins 1 meter frá vellinum, … Þetta verður prófraun fyrir mig. Þetta verður prófraun á æfingareðlið mitt, vegna þess að ég hef aldrei verið í þeirri stöðu að þurfa að vinna fyrir þeirri stöðu sem ég var í og jafnvel þurfa að verða betri.“

Clark hafði aðeins misst af 2 leikjum síðustu 4 tímabil vegna meiðsla eða veikinda. Sú staðreynd var ein af stærstu ástæðunum að Utah fékk Clark til liðs við sig eftir að Karl Malone fór til L.A. Lakers.

Clark er 28 ára gamall og hefur skorað 8.2 stig að meðaltali í NBA á sex árum. Hann lék áður með Denver, Toronto og Sacramento. Clark sem er 211 sm á hæð og vegur 100 kíló hefur spilað 28 leiki í úrslitakeppni NBA og því augljóst að þarna fer reynslumikill leikmaður á ferð.
(tekið af www.sport.is)