Eins og þið hafið mörg hver orðið vör við í gagnrýnum mínum, þá kalla ég ákaft eftir stuðlum og höfuðstöfum þegar þið notið rím. Ég veit ekki hversu vel þið eruð að ykkur í bókmenntum þannig að ég hef hugsað mér, að ræða þetta hugtak aðeins. Ljóðstafir eru elsta stílbragð í íslenskum ljóðum. Það fluttist hingað með landnámsmönnum þeim er fluttu ljóð. Þess ber glöggt merki í ljóðum eins og ,,Sonatorrek“ og Hávamálum. úr Hávamálum 6. að Hyggjandi sinni skylit maður Hræsinn vera Heldur gætinn...