ég á pekingeser, sem eru einhverjir krúttlegustu hundar í heimi, þeir eru reyndar með geðveikt mikinn persónuleika og fara í geðveika fýlu ef maður misbýður þeim, þeir eru venjulega ekki matvandir og éta allt milli himins og jarðar, minn borðar spaghettí með hakki og ristabrauð með osti. Hann vill ekki sjá hundamat og ef hann fattar að við erum að borða eitthvað annað en hann snertir hann ekki matinn og fer í fýlu þangað til maður gefur honum af því sem maður er að borða sjálfur.