Mér finnst Survivor þættirnir orðnir hundleiðinlegir en ég skrifaði þetta ekki til að bögga ykkur og ykkar áhugamál eins og svo margir fávitar gera, mig langaði bara að fá ykkur til að velta fyrir ykkur hvort það gæti hugsanlega verið mögulegt að þetta sé allt svindl!!! ég fylgdist með þáttunum í 1. og 2. seríu og sá einn og einn þátt úr 3. og 4. seríu. Mér finnst þetta vera orðið þannig að það er eins og það sé búið að ákveða fyrirfram hver vinni. Ég var að velta fyrir mér hvort þetta væru bara leiknir þættir þar sem óþekktir áhugaleikarar fá að koma fram í von um að þetta komi þeim á framfæri. Ég veit um allavegana 2 stelpur sem voru í Survivor 1 sem hafa lagt leiklistina fyrir sig. Mér finnst líka afar ótrúlegt í þessu karlrembusamfélagi sem við búum í dag að hommi og 3 konur hafi unnið (ein meira að segja svört) hafi unnið. Ég vil taka það fram að ég er ekki rasisti.
Ég vil endilega fá komment.
-Það er snákur í stígvélinu mínu