Mín fullkomna sims fjölskylda samanstóð af afar ástföngnu pari sem ættleiddi lítinn strák, stuttu eftir að barnið kom kviknaði í eldavélinni og kallinn dó. Konan lagðist í þunglyndi og social services komu og tóku litla strákinn. Til að greyið konan yrði ekki einmana bjó ég til fjölskyldu sem samanstóð af pabba og dóttur. Konan og pabbinn fóru að verða ástfangin og kallinn flutti inn til hennar með stelpuna. Svo eignuðust þau barn sem síðar stækkaði og varð að ljóshærðri stelpu (Allir hinir í fjölskyldunni eru dökkhærðir). Svo kemur að því að fyrrverandi maður konunnar (sem dó) fer að ganga aftur og hræða fólkið mitt. Hann kemur á næturnar og er svona gagnsær/grænn á litinn. jæja, ok en svo kviknar í grillinu mínu og nýi maður konunnar deyr. Dauðinn kemur og hún grátbiður hann að kallinn sinn fái að lifa. Hann leyfir það en breytir kallinum í sombie. Þannig að hann er líka grænn. Núna er sombieinn ekki með neinn persónuleika.


Veit einhver hvort hægt er að losna við drauginn?
Veit einhver hvort/hvernig er hægt að breyta kallinum úr sombie í venjulegan kall?
-Það er snákur í stígvélinu mínu