Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Er hægt að brjóta það sem er brotið?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Reyndar er það möguleiki að maður líti ekki á brotin hlut sem sama hlutinn, en geti lagað hann og litið þá á hann sem sama hlutinn og áður en hann var brotinn. Þá gæti maður náttúrulega brotið hann og þá verið að brjóta sama hlutinn tvisvar. Í rauninni snýst þetta bara um það hvenær maður lítur á hlut sem sama hlut og áður og hvenær ekki.

Re: Er hægt að brjóta það sem er brotið?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ef þú lítur á brotin hlut sem sama hlutinn, bara í öðru ástandi, þá geturðu væntanlega brotið hann aftur. En ef þú lítur á hann sem annan hlut eða hluti þá geturðu ekki brotið hann aftur.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Það sem er fast í þessum samningi er það að þú þarft að fara að lögunum á meðan þú býrð hér. Þetta vissir þú eða foreldrar þínir þegar þú varðst ríkisborgari. En auðvitað má ríkið ekki gera hvað sem er. Ef þú telur að ríkið hafi brotið á þeim réttindum sem þú hefur þá geturðu kært það og krafist bóta. Og ef þú vilt þá geturðu líka farið annað og verið laus við þær kvaðir sem fylgja íslenskum ríkisborgararétti. Og þú átt víst að þurfa að fara annað ef þú vilt ekki fylgja lögunum og borga...

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Þú færð meira en bara vernd á grundvallarréttindum þínum fyrir það að vera íslenskur ríkisborgari. Þú færð að búa hér, vinna hér, nota almenningsþjónustu, fá bætur ef þú þarft og svo framvegis. Í staðinn þarftu að fylgja lögum ríkisins á meðan þú býrð hér og þar með talið að borga skatt. Þetta er að mínu mati samningur. Og jafnvel þótt þú getir ekki afsalað þér íslenskum ríkisborgararétti þá ættirðu að geta farið eitthvert annað ef þú vilt og þá þarftu ekki lengur að borga skattinn.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Við gerum enga samninga við fæðingu Víst. Við verðum íslenskir ríkisborgarar. Foreldrar taka þá ákvörðun fyrir okkur, eins og þeir ákveða hvað við borðum og fleira. Ef þú ert ósáttur við þann samning geturðu rift honum hvenær sem þú vilt.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Er það ofbeldi ef maður tekur leigu af þeim sem búa á eign hans? Nú hljómar þú frekar eins og kommúnisti en frjálshyggjumaður.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Nei, ég sagði ekki að hvaða ofbeldi sem er væri í lagi svo lengi sem það er bara hægt að flytja í burtu. Ég sagði að það væri í lagi að rukka fólk fyrir að búa á svæði en að það væri ekki í lagi að drepa það. Ef þú sérð engan mun á því að leigusali rukki fólk fyrir að búa í íbúð sem hann á og því að hann drepi það þá þarftu að láta athuga hausinn á þér.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Nei, ekki frekar en það er í lagi að leigusali drepi leigjendur sína ef þeir yfirgefa ekki heimili sín vegna þess að þeir séu gyðingar. ertu hálfiti gaur? Meinarðu hálfviti?

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Þú þarft ekkert að borga skattinn ef þú býrð ekki hérna. Þú getur bara flutt ef þú ert ósáttur. Og þótt þú hafir ekki gengist undir neinn samning um að búa hér, heldur fæddist bara hér, þá geturðu bara kennt foreldrum þínum um það, því þeir ákváðu eiga þig og ala þig upp hér.

Re: Kostir Frjálshyggju

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Þetta er algjör steik. Eins og það sé eitthvert hræðilegt ofbeldi að taka skatta af fólki. Þetta er bara gjald fyrir að fá að búa hérna. Er það ofbeldi ef leigusali rukkar fólk um leigu fyrir að búa í íbúð sem hann á? Og í tilfelli skatta þá fara þeir aftur út í samfélagið í staðinn fyrir að fara bara í vasa leigusalans. Liði ykkur frjálshyggjumönnunum betur ef einhver einn gaur ætti Ísland og ræki það alveg eins og ríkið, nema hvað hann myndi rukka 5% auka skatt sem færi beint í hans eigin vasa?

Re: LÆKKA ELDSNEYTISSKATT!!!!!

í Tilveran fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Nei, það væri einum of mikið af því góða. Fólk verður nú að að hafa smá næði. Frekar að hvetja þolendur til þess að kæra.

Re: LÆKKA ELDSNEYTISSKATT!!!!!

í Tilveran fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Af því það er að neyða fólk til þess að hafa neyslu sína eftir því sem ríkið telur æskilegt. Og hvað með það? Ekkert réttlætir það að láta mig borga meira fyrir þessa vörur vegna þess að sumir geti ekki stjórnað sér. Það er þeirra vandamál. Réttlæti er mjög afstætt. Fyrir mér er ekkert óréttlátt við þetta. Ekki frekar en það óréttlátt að banna börnum að drekka.

Re: LÆKKA ELDSNEYTISSKATT!!!!!

í Tilveran fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Af hverju er það ósanngjarnt? Mér finnst ekkert ósanngjarnt við það. Fólk finnur þá fyrir því að það sé skaðlegt að eyða bensíni í óþarfa.

Re: LÆKKA ELDSNEYTISSKATT!!!!!

í Tilveran fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Við erum svo heimsk nefnilega. Á þetta að vera kaldhæðni? Því þetta er alveg ótrúlega satt. Af hverju heldurðu að við borðum óhollt fæði, drekkum áfengi og eyðum bensíni, sem er af skornum skammti í heiminum og eyðileggur andrúmsloftið, í óþarfa?

Re: LÆKKA ELDSNEYTISSKATT!!!!!

í Tilveran fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Er Ísland þá fasistaríki? Mér líður samt alveg ágætlega þótt ég búi hér og flestum, ef ekki öllum, sem ég þekki líka. Fasisminn er þá ekki svo slæmur eftir allt saman.

Re: LÆKKA ELDSNEYTISSKATT!!!!!

í Tilveran fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Mér finnst það bara ágætt að skatturinn sé eins og hann er. Ef að verð á olíu er hátt er það væntanlega vegna þess að það er lítið framboð á henni. Ef að skatturinn yrði síðan lækkaður þá myndi óþarfa neysla væntanlega aukast. Og það er slæmt að óþörf neysla á einhverju mikilvægu sem skortur er á aukist. Það er alla vega mitt álit.

Re: Stærðfræði!!???

í Tilveran fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Seinna dæmið er: a4-2an-a2-n2=a4-(a2+2an+n2)=(a2)2-(a+n)2=(a2+a+n)(a2-a-n)

Re: Svartir sýna sitt rétta andlit

í Deiglan fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Það er ekki það sama Jón og séra Jón… http://216.239.54.9/blogger/2410/214/1600/loot1.jpg

Re: Um hugtökin 'sannleikur' og 'raunveruleiki' og notkunn þeirra.

í Heimspeki fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Þannig að þú ert í rauninni að segja að þú skiljir orðin “sannleikur” og “raunveruleiki” sem samheiti (mismunandi box með sömu merkingu). En þá verður allt þetta tal um að hugtökin séu jafngild, að það sé í lagi að víxla hugtökunum o.s.frv. alveg sjálfgefið. En málið er að eftir því sem ég best veit þá er t.d. spurningin “hvað er sannleikur?” hugsuð út frá öðrum skilningi á hugtakinu “sannleikur” heldur en að það sé bara samheiti yfir orðið “raunveruleiki”. Mér virðist þú halda að ég sé að...

Re: Um hugtökin 'sannleikur' og 'raunveruleiki' og notkunn þeirra.

í Heimspeki fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ég er ekkert að neita því að það séu tengsl á milli hugtakanna. Ég er bara að segja það að merkingin sé ekki nákvæmlega sú sama. Fyrir mér er merking hugtaksins “sannleikur” sú að það sé eitthvað sem lýsir raunveruleikanum, en ekki raunveruleikinn sjálfur. Þannig er td hægt að segja að lygi sé raunveruleg því hún er til, en ekki að hún sé sönn því hún lýsir ekki raunveruleikanum. Þess vegna vildi ég fá að vita hver merking orðanna er fyrir þér. Hvort orðin merkja það sama fyrir þér og mér...

Re: Um hugtökin 'sannleikur' og 'raunveruleiki' og notkunn þeirra.

í Heimspeki fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ég sé ekki betur en svo að þú skilgreinir einfaldlega hugtökin “sannleikur” og “raunveruleiki” eins. Þannig geturðu auðveldlega komist að þeirri niðurstöðu að það sé jafngilt að svara spurningunni “Hvað er sannleikur?” og að svara spurningunni “Hvað er raunverulegt?”. En málið er að eftir því sem ég best veit þá er skilgreiningin á þessum hugtökum mismunandi og því ekkert endilega jafngilt að svara þessum spurningum. Hins vegar er það þannig að það er hægt að rugla þessum hugtökum saman í...

Re: Bestu illmennin

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Hvað með Vic Vega úr Resevoir Dogs? Hann var nokkuð nasty.

Re: Um hugtökin 'sannleikur' og 'raunveruleiki' og notkunn þeirra.

í Heimspeki fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Það var nú aðallega þessi einföldun sem stóð í mér. Þess vegna sagði ég að spurningin “er þetta satt?” væri jafngild spurningunni “lýsir þetta raunverulegri stöðu mála?”, frekar en spurningunni “er þetta raunverulegt?”.

Re: Um hugtökin 'sannleikur' og 'raunveruleiki' og notkunn þeirra.

í Heimspeki fyrir 19 árum, 9 mánuðum
En hvernig skilgreinirðu þá hugtökin? Það er virðist nefnilega vera þannig að þú skilgreinir hugtökin eins, og að þetta snúist síðan um það að leiða af því að þau séu jafngild.

Re: Um hugtökin 'sannleikur' og 'raunveruleiki' og notkunn þeirra.

í Heimspeki fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Lýsir setningin (sem gæti verið sönn) “Ef að þyngdarkrafturinn væri 10 sinnum sterkari en hann er í raun myndi alheimurinn falla saman innan 10 milljón ára.” einhverjum eiginleika raunveruleikans? Ég var að pæla í þessu. Er svarið ekki já? Ef þetta er satt segir þetta manni td það að alheimurinn innihaldi nógu mikið af efni til þess að hann falli saman innan 10 miljón ára ef þyngdarkrafturinn væri tífalt meiri en hann er, og að þyngdarkrafturinn í raun sé það mikill að ef hann væri tífalt...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok