Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Stærðfræði...?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 1 mánuði
þúst omfG hva helduru að ég sjé ikkur sveitur stærfræðin3errd sem er bara að diffra lógaritma og tegra vísisföll allann daginn eða ikka.ð sko.

Re: Stærðfræði...?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 1 mánuði
stærfræði er nottla bara fyrir n3rdz, skoh.

Re: Fyrirfram- og eftiráþekking

í Heimspeki fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Það er það að ef þetta væri mögulegt og einhver myndi fara svona ferð þá myndi hann augljóslega koma jafn oft á og hann færi af bakka eða eyju sem hann hvorki byrjar né endar ferðina á. Því þyrfti fjöldi brúa sem tengjast þeirri eyju eða bakka að vera slétt tala (fjöldi skipta sem hann kom á eyjuna plús fjöldi skipta sem hann fór sem er jafnt og tvisvar annað hvort). En báðar eyjurnar og báðir bakkarnir tengjast oddatölufjölda af brúm og maður getur ekki byrjað eða endað á öllum svo þetta er...

Re: Varðandi Goatisma

í Heimspeki fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Bíddu, ég næ þessu ekki alveg. Rökvillan í þessu er bara sú að gert er ráð fyrir að neitunin á “Allt er geit” sé “Ekkert er geit” sem er ekki rétt. Neitunin er “Til er eitthvað sem er ekki geit”. Ég sé ekki hvernig þetta contingent eða noncontingent dót tengist þessu.

Re: Fyrirfram- og eftiráþekking

í Heimspeki fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Netafræði snýst um eiginleika neta, sem eru fyrirbæri sem samanstanda af hnútum og síðan leggjum sem tengja hnútana saman. Þetta Köningsberg dæmi er einmitt svona net þar sem eyjurnar og bakkarnir eru hnútar og brýrnar eru leggir. Það þarf samt enga flókna stærðfræði til þess að leysa þetta, maður þarf bara að átta sig á einu mikilvægu atriði.

Re: Fyrirfram- og eftiráþekking

í Heimspeki fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Stærðfræðigrein.

Re: Fyrirfram- og eftiráþekking

í Heimspeki fyrir 19 árum, 2 mánuðum
Þetta lið kunni greinilega lítið í netafræði.

Re: Silvía - Veistu hver það er?

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Ágústa Eva? Hver er það? Er það kannski mamma þín?

Re: Silvía - Veistu hver það er?

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Þú segir ekki… En Silvía Nótt titlaði hann sem forætisráðherra þegar hún las aðdáendabréfið frá honum. Hvurslags hálfviti er hún eiginlega? Ohh, hvað ég þoli hana ekki.

Re: Silvía - Veistu hver það er?

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Jú, það víst einhver “orðrómur” um það að pabbi hennar ætti Skjá einn. Það var meira að segja sagt í þáttunum hennar. Og jújú auðvitað vill maður að henni gangi vel. En ef við skíttöpum þá skíttöpum við með stæl. Og það er næstum því eins gott. :)

Re: Silvía - Veistu hver það er?

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Nei, allt í lagi þú ert kannski ekki að fara á taugum en þú hljómar dálítið eins og þér finnist það slæmt að fólk muni ekki kjósa hana. En það sem fer aðallega í taugarnar á mér er það að fólk hérna á Íslandi sé það vitlaust að það hafi ekki fattað þetta strax, því þetta var svo fáránlega augljóst. Ég meina, hún las upp aðdáendabréf frá Ólafi Ragnari Grímssyni “forsætisráðherra” í fyrsta þættinum sínum. Og ekki nóg með það, heldur var það sýnt þegar myndatökumaðurinn sagði henni hversu...

Re: Silvía - Veistu hver það er?

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hvað var málið með að fatta ekki að Silvía Nótt væri tilbúinn karakter? Þetta var alltof augljóslega vitlaust til þess að þetta gæti verið alvara og ég efast um að það hafi verið meðvitað gert út á það að fólk myndi ekki fatta það. Þetta minnir mig á þegar að fólk skrifaði greinar hérna Huga sem voru augljóslega grín, kaldhæðni eða eitthvað þvíumlíkt og fengu síðan sirka hundrað “Ertu fáviti, þetta er ekki rétt hjá þér” svör. Og ég skil ekki hvað þú ert að fara á taugum yfir því að Evrópa...

Re: Að vera góður

í Heimspeki fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Tja, uppeldi af hendi foreldra og samfélags. Trúarbrögð eru líka mjög fín í þetta og ég myndi ekki vilja lifa í trúlausu samfélagi þótt ég sé ekkert sérstaklega trúaður sjálfur.

Re: Að vera góður

í Heimspeki fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Samfélagið myndi náttúrulega lifa af nokkur frávik…annars væri það löngu dautt. En það er náttúrulega ekki sniðugt ef fólk hugsar þannig að það skipti nánast engu máli þótt það sé ekki gott því það sé svo lítill hluti af samfélaginu og þeirra “ó-góðmennska” sé bara örlítið frávik sem samfélagið þolir alveg. En eins og ég sagði, samfélagið verður bara að sjá til þess að fólk vilji virkilega vera gott.

Re: Að vera góður

í Heimspeki fyrir 19 árum, 4 mánuðum
Ég myndi segja að það sem telst vera gott fari meira og minna saman við það sem er samfélaginu til góða. T.d. að hjálpa náunganum þegar hann er í vanda og að fara eftir lögunum. Hvernig væri samfélagið ef enginn myndi hjálpa öðrum sem væri í vanda og enginn færi eftir lögunum? Ég held líka að það sé ekkert hægt að færa nein rök fyrir því að vera góður ef maður vill ekki vera góður ef maður græðir ekkert á því og hugsar bara um sjálfan sig. Það verður bara að sjá til þess að fólk vilji vera gott.

Re: DV málið

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Sölumanninum er náttúrulega ekki einum um að kenna í svona málum. Auðvitað bera neytendur, framleiðendur og stjórnmálamenn sem leyfa þetta líka ábyrgð. Ég var ekki að segja að svo væri ekki. Ég var bara að segja að dreifingaraðilarnir væru hluti af þessu. Ef dreifingaraðili ákveður að hætta að selja DV þá hefur það mun meiri áhrif heldur en ef td einn neytandi hættir að kaupa það. Auðvitað er áhrifaríkast að fá einfaldlega lögbann á hlutina en það er kannski ekki eins auðvelt.

Re: DV málið

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Það er eins og það eina sem gerir dreifingu barnakláms ósiðlega í þínum huga sé það að hún er ólögleg. En segjum að við tveir flyttum til lands þar sem barnaklám er löglegt en væri álitamál. Þá væri hægt að beita nákvæmlega sama málflutningi og þú beitir. Dreifingaraðili barnakláms getur tekið ábyrgð á sig og hætt að selja það, hinsvegar er hann ekki skyldur til þess að lögum – fyrir framan dómstólum er hann ekki ábyrgur. Vegna þess að fyrirtæki á frjálsummarkaði á eftir að halda áfram að...

Re: DV málið

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hver var að tala um undirskriftalistann? Alla vega ekki ég. Ég var bara að benda þér á hversu asnalegum rökum þú beittir til að sýna fram á að neytendur bæru einir ábyrgð á þessu en ekki dreifingaraðilar. Ef að ástæðan fyrir því að þér mislíkar þetta fólk er sú að það þér finnist það vera að hóta ofbeldi eða einhverju svoleiðis, en ekki sú að það telur dreifingaraðilann bera einhverja ábyrgð, þá áttirðu að segja það strax.

Re: DV málið

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Við erum að tala um fólkið sem stendur (eða stóð) að þessum “aðgerðahópi”, en ekki alla Íslendinga. Því finnst þetta greinilega ansi siðlaust. Kannski ekki eins siðlaust og barnaklám, en ansi siðlaust samt. Og þú kallaðir þetta fólk fávita fyrir það að áfellast dreifingaraðilana. Af hverju er þetta fólk fávitar fyrir það að áfellast dreifngaraðila efnis sem það telur siðlaust? Ímyndaðu þér land þar sem litið væri á barnaklám með svipuðum augum og DV hér. Væri fólk þar sem áfelldist...

Re: DV málið

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Eins og ég skil það sem BessiB sagði þá var hann að benda á með dæmi er það að dreifingaraðili er venjulega talinn vera einn af þeim sem ber ábyrgð í málum þar sem siðlausu efni er dreift, ekki bara kaupandinn. Af hverju er það eitthvað öðruvísi fyrir hluti sem eru bæði ólöglegir og siðlausir og fyrir hluti sem eru siðlausir en samt löglegir, og þá sé bara neytendum um að kenna? Gæti ég þá dreift barnaklaámi þar sem ég væri ekki að brjóta nein lög og væru þá kaupendur barnaklámsins þeir einu...

Re: DV málið

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hvurslags rök eru þetta? Er það eina sem er athugavert við dreifingu barnakláms það að hún er ólögleg? Er þá ekkert athugavert við hana ef ég stunda hana í landi þar sem engin lög eru til yfir þetta? Þá er bara við neytendur að sakast en ekki mig, ekki satt?

Re: Ekki voga ikkur að gera þetta

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Það er það eina sem er að þessum texta.

Re: Er skák íþrótt...??

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Mamma þín er íþrótt.

Re: Könnunin

í Heimspeki fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Eins og ég skil þetta þá stendur ekki að hann raki ekki þá sem raka sig sjálfa, heldur bara að hann raki alla í bænum sem raka sig ekki sjálfa. Þess vegna gæti hann alveg rakað sjálfan sig.

Re: Nú hafa þær gengið of langt!

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Beygla.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok