Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Nú hafa þær gengið of langt!

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Vá, hvernig geta þessar konur verið svona miklir fávitar?

Re: Virkni áhugamálsins

í Heimspeki fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Af hverju sendir þú ekki inn grein?

Re: Goth = Djöfaldýrkendur

í Tilveran fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Goth eru svo svalir að þeir eru svalari en undirskriftin mín.

Re: Við megum ekki gleyma sögunni okkar

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Sjitt, þetta eru bestu og ítarlegustu rök sem ég hef séð. Algjört 0wN4g3.

Re: Lausn allra vandamála í heiminum!

í Deiglan fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Nei, hún er fullkominn. Þeir sem halda öðru fram eru guðlastarar.

Re: Fræg spurning....

í Heimspeki fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Miðað við hvern? Hlutir hafa bara tilgang í augum þeirra sem gefa þeim tilgang. Steinn hefur engan tilgang einn og sér, en ef manneskja ákveður t.d. að nota hann í eitthvað þá öðlast hann tilgang í augum þeirrar manneskju.

Re: Lausn allra vandamála í heiminum!

í Deiglan fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Lausnin á öllu er lausnahyggjan. Ótrúlegt að fólk hafi ekki áttað sig á þessu.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Snúa út úr? Ég spurði þig háalvarlegrar spurningar. Af hverju er frelsi svona mikilvægt? Má ekki grínast aðeins líka?

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
NAUÐSYNLEG FRELSISSKERÐING?!??! Þetta er fasismi og ekkert annað. Það réttlætir ekkert það að skerða frelsi mitt bara af því þú vilt ekki hafa samfélagið á einhvern veg eða annan. Láttu mig nú hafa allt sem þú átt eða ég fer að grenja. En svona í alvöru, af hverju þarf að tryggja einstaklingnum frelsi til að samfélagið gangi upp? Mér finnst það ganga ágætlega eins og það er.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég sagði ekki að frjálshyggjan væri á móti eignarrétti. Ég sagði að eignarréttur væri frelsisskerðing.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Nei, ríkið gerir það fyrir þig, í frjálshyggjuríki sem og öðrum ríkjum. Um það snýst eignarrétturinn.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Jæja, það er þó eitthvað. :)

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ef þú bannar manni að taka frá þér með hótun um ofbeldi ef hann gerir það þá ertu að skerða frelsi hans.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Nei svona í alvöru, hvað er svona ósanngjarnt við þetta? Ég fæ endurgreiðslu t.d. fyrir leiksskóla ríkisins og fer með hærri tekjur til einkaleiksskóla í staðinn. Ég er nú ekkert sérstaklega á móti þessu. Og ef þú ert alveg að farast yfir þessu tónlistarhúsi þá geturðu bara boðið fram lista í borgarstjórn sem er á móti þessu.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Mitt siðferði er öðruvísi, almennt siðferði er öðruvísi og lagalegt siðferði er öðruvísi en þitt því það segir að það sé í lagi að taka skatta af fólki. Hvað er svona heilagt við einkaeignarrétt að það megi ekki beygja hann til að hugsa um samfélagið? Hann er jú í grunninn bara frelsiskerðing, eitthvað sem þú virðist hata.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Nei, ég held að ég vilji frekar að ríkið sjái um margt af þessu. Ég og margir aðrir eru mjög fáfróðir, enda ég rétt orðinn fullráða, og vita ekki alltaf hvað er mér og samfélaginu fyrir bestu. Mér hefur oft þótt heimskulegt að ríkið eyði í eitthvað en síðan séð að það var góð ástæða fyrir því. Síðan er ákveðið hópsamtak í ríkinu og sköttunum. Ég er t.d. sáttur við að borga skattana því ég veit að allir eiga að gera það. Ef eigingjarnt fólk slyppi við það væri ég ekki sáttur.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ekki samkvæmt almennu siðferði og ekki samkvæmt mínu siðferði.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Maður vill ekki alltaf valmöguleika handa sér eða öðrum, heldur frekar ríkisflæðið.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Nei, ég kýs bara yfir mig stjórnmálaflokk sem tekur af mér og öðrum skatta til að borga þetta. Og það eru lögin og almennt siðferði sem réttlæta það að þú þurfir að borga þetta.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Ég vil frekar að fólk fái örugglega pening frá ríkinu heldur en að það þurfi að treysta á tryggingar. Margt fólk er jú heimskt og myndi ekki tryggja sig. Og ég vil frekar að samfélagið borgi undir slíkt fólk heldur en að það lendi bara á fjölskyldu viðkomandi. Ég myndi náttúrlega borga slíkt ef ég byggi í frjálshyggjusamfélagi, en það geri ég ekki og vil ekki gera.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Peningurinn fer ekki beint í vaskinn ef hann fer í að viðhalda kerfinu. Hann fer í það að viðhalda kerfinu. Og kerfið rúlar.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Sanngjarnasta samfélag hlýtur að vera að hver borgar fyrir sig. Sanngjarnt er afstætt. Mér þætti það t.d. ekki sanngjarnt að maður sem missir fæturnar í bílslysi þyrfti að borga allan kostnað sem fylgir því að vera fótalaus auk venjulegs uppihalds með peningum sem hann getur ekki unnið sér inn. En það þætti þér sanngjarnast er það ekki? Mér finnst ekkert að því að ríkið taki skatta af fólki til að borga fyrir hitt og þetta ef það er góð ástæða fyrir því.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þótt að ríkisrekstri fylgi ákveðnir ókostir þá finnst mér samt betra að hið opinbera borgi þetta til að létta undan barnafjölskyldum, enda mjög kostnaðarsamt að eiga ungabarn þótt leikskólagjöldin bætist ekki ofan á. Og ríkið borgar margt annað en leikskólana með sköttum fólks svo sú lækkun á sköttum sem einkavæðing leikskólanna myndi borga væri bara brot af þeim gjöldum sem fólk þyrfti að borga ef það borgaði allt sjálft.

Re: Frjálshyggjumenn vilja hækka laun leikskólakennara

í Stjórnmál fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Frjálshyggjumenn vilja að fólk borgi sjálft allan kostnað af leikskólum barna sinna, þar með talið þessa launahækkun kennaranna. Mér finnst það ekki sniðugt. Ég vil frekar að hið opinbera borgi leikskólana.

Re: VR auglýsinginn...

í Tilveran fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hlutföll owna einstaklinginn.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok