Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Ástandið hér á landi er HRÆÐILEGT...

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ákvarðanir annarra bitna alltaf á þriðja aðila. Það er bara eðli allra samfélaga. Ef þú áttar þig ekki á því finnst mér ekki skrítið að Monapoly reglurnar heilli þig. Ætlarðu kannski að segja mér að líf þitt væri eins sama hvort þú fæðist hérna á Íslandi þar sem annað fólk hefur tekið ákvarðanir um að byggja upp alveg skítsæmilegt samfélag eða í einhverjum frumskógi í Afríku? Ætlarðu líka að segja mér að það skipti þig ekki máli hvort foreldrar þínir tóku þá ákvörðun að verða dópistar eða...

Re: Ástandið hér á landi er HRÆÐILEGT...

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Í fyrsta lagi þá tekur fólk ákvarðanir um það hvernig það hagar lífi sínu núna. Ætlarðu að segja mér að rónar á Hlemmi og bankastjórar stóru bankanna hafi ekki tekið ákvarðanir um það hvernig þeir haga lífi sínu? Og síðan er heimurinn aðeins flóknari en Monapoly þannig að já, ég vil flóknari reglur, þar með talið reglur sem setja persónufrelsi fólks skorður. Þér er samt guðvelkomið að vera ósammála mér.

Re: Ástandið hér á landi er HRÆÐILEGT...

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Fyrst að heimurinn væri betri… af hverju ekki þá að hafa reglurnar svona? Það sem ég átti við var það að heimurinn væri betri ef hann væri bara eins og einfalt spil þar sem allir fara eftir þessum reglum sem er lýst í þessu myndbandi. Og það var kaldhæðni ef það fór fram hjá þér líka.

Re: Ástandið hér á landi er HRÆÐILEGT...

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Orðið monopoly þýðir einokun, en ég var að tala um spilið Monopoly. Það sem ég átti við var það að heimurinn væri betri ef hann væri bara eins og einfalt spil þar sem allir fara eftir þessum reglum sem er lýst í þessu myndbandi. Og það var kaldhæðni ef það fór fram hjá þér líka. Og fyrst þú minnist á það af hverju er einokun ekki í samræmi við frjálshyggju? Hverju skiptir það hvort það er einn aðili eða fleiri á markaðnum? Á frjáls markaður ekki bara að ákvarða það?

Re: Ástandið hér á landi er HRÆÐILEGT...

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Vá, ég felldi næstum tár, þetta var svo fallegt. Bara að lífið væri meira eins og Monapoly spil. Þá væri allt betra.

Re: Ástandið hér á landi er HRÆÐILEGT...

í Deiglan fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Á þá ekki bara að bjóða sig fram til þings? Hvað varð eiginlega um framboð Frjálshyggjufélagsins? Fyrst ástandið hérna er svona HRÆÐILEGT þá hlýtur fólk að flykkjast á kjörstað til þess að kjósa flokk sem vill lækka skatta og skera niður almenningsþjónustu.

Re: "Þetta fólk"

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Nákvæmlega. Stingum bara höfðinu í sandinn og þá reddast allt. Og þeir sem gera það ekki eru að sjálfsögðu rasistar.

Re: "Þetta fólk"

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Eins og ég sagði áður þá finnst mér fáránlegt að það megi ekki minnast á það að of mörgum innflytjendum á of skömmum tíma geti fylgt vandamál án þess að það teljist rasismi. Það er stundum eins og það séu bara tveir pólar á þessu, annars vegar rasistar og hins vegar eitthvað ofur “pólitískt rétt” lið sem vill bara líta fram hjá öllum hugsanlegum vanda sem innflytjendum gæti fylgt og kallar alla sem gera það ekki líka rasista.

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ef þér þykir fangadæmið ennþá fáránlegt þá er farið betur í það á Wikipediu en ég gerði. http://en.wikipedia.org/wiki/Prisoners_dilemma En ég nenni ekki að halda áfram að rífast við þig. Þú ræður hvort þú lest þetta og hvernig þú túlkar það.

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Maður hefði haldið það.

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
“Ég hef margt betra við minn tíma að gera.” Já, ég líka. Þú mátt alveg eiga þig og þína frjálshyggju fyrir mér.

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég er ekki að tala um að þú þurfir að halda neinum á lífi, ég er að segja að þú megir ekki hindra frelsi annarra til að halda sjálfum sér á lífi. Það gerirðu með því að hindra frelsi annarra til að ná í þá hluti sem þeir þurfa til að lifa. Til að virða frelsi þeirra til þess þarftu ekki að gera nokkurn skapaðan hlut, þú þarft bara að sitja á rassinum og gera það sem þú vilt. Það er ekki fyrr en þú vilt hindra fólk í því að ná í hlutina sem þú þarft að gera eitthvað. Og af hverju er það? Jú,...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
“sjálfur er ég með cand.jur í lögfræði og BA í hagfræði.” Það lá við að ég myndi hlægja upphátt þegar ég las þetta. Ert þú týpan sem kemur því að hvar sem hann fer að hann sé “cand.jur í lögfræði”? Gengurðu kannski í jakkafötum dagsdaglega? Reyndar er ég sammála þér með félagsfræðina, en lögfræði er samt ekki mikið ofar á virðingarskalanum mínum. Hagfræði er sjálfsagt ágæt en að flagga menntun sinni á spjallsíðu fyrir bólugrafna unglinga er svo lúðalegt að ég á varla orð yfir það. Þegar þú...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Þú talar mikið um að frjálshyggja sé betri en stjórnleysi, en að mínu mati þá er okkar samfélag mun æskilegra, þannig að ég er ekki sannfærður. Og þótt mest af sveltandi fólki sé í þróunarheiminum þá er alveg nóg af því á Vesturlöndum líka. Og með því einfaldlega að eiga mat ertu að halda honum frá sveltandi fólki. Og fyrst þú sagðir að það væri einfalt mál að réttur til lífs væri mikilvægari en eignarrétturinn þá segi ég einfaldlega að þú megir ekkert halda þessum mat frá fólkinu því þeirra...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
“Ef þú virðir ekki frelsi hvers annars erum við bara komin í samfélag þar sem hinir sterkustu ráða og engar reglur gilda.” Er þá samfélagið okkar þannig? Eru engar reglur í því? Eða virðir okkar samfélag kannski frelsið? “Spurning þín um landeigandan sem á allt er einföld, þarna ræðst hvor skerðingin er meiri það er réttur til lífs hærri en eignaréttur, hvað heldur þú. Þó svo eignaréttur sé talinn heilagur enda framlenging á hæfileikum okkar er frelsi til lífs bara alltaf rétthærra.” Þarna...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
En það er ekkert á bak við þessi “grunnréttindi” ef þú lítur svona á það. Það er hægt að kalla hvað sem er grunnréttindi, það þýðir ekki að það sé neitt á bak við það. Ég gæti til dæmis sagt að ég hafi ferðafrelsi og að eignarréttur á lóðum svipti mig þessum grunnrétti og hann sé því þvingun. Maðurinn hefur alltaf haft frelsi til að fara þangað sem hann vill. Eins og til dæmis þú þegar ég svelti þig inn á lóðinni þinni. Ég hef sem sagt enga ástæðu til að virða þessi “grunnréttindi” þín...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
“Þú getur alltaf brotið á einhverjum en það er frelsisskerðing ólíkt beitingu grunndvallaréttinda þinna. Það er þú sem ert að rugla, ef innbrot væru lögleidd væri þá hægt að segja að þau væru réttur sem alltaf hafi verið til, klárlega nei.” Hvað í helvítinu ertu að tala um? Það sem ég sagði var að þú hefðir beitt fáránlegri röksemdafærslu þegar þú segir: “Í þínu eigin svar hrekuru eigin fullyrðingu förum að eins ofan í það. Þú segir: “Ef maður var staðin að því að hafa óæskilegar skoðanir,...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Þetta er bara rugl hjá þér. Þú tekur það sem fólk getur alltaf (eða ALLTAF, ef þú vilt) gert og segir að fyrst fólk geti alltaf gert þessa hluti þá hafi það alltaf haft réttindi til þess. Eins og þú segir: “Biddu hvað er í gangi hér hafði fólk óæskilegar skoðanir það getur ekki verið samkvæmt þér eru það alveg nýtilkomið.” Þarna ertu að blanda saman hlutum. Ég sagði að rétturinn til þess væri nýtilkominn. Fólk getur gert eitthvað án þess að hafa rétt á því. Dæmi: Ég get labbað inn á lóð sem...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Þetta er einfaldlega rangt hjá þér. Það hefur ekkert alltaf verið litið á þessi “neikvæðu réttindi” sem grundvallarréttindi. Til dæmis á miðöldum þá hafði fólk lítið af þessum réttindum. Ef maður var staðin að því að hafa óæskilegar skoðanir, óæskilega trú eða segja óæskilega hluti þá brenndi kirkjan mann á báli. Þessi “grundvallarréttindi” hafa bara verið “grundvallarréttindi” í nokkur ár og þá bara á sumum stöðum í heiminum. Og að vissu leyti þá eru þessi réttindi ekki alveg heilög hér...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég gef nú ekki mikið fyrir þessa röksemdafærslu. Þú tekur einfaldlega þau réttindi sem þú vilt hafa, splæsir einhverjum flottum nöfnum á þau og segir að akkúrat þessi réttindi séu óaðskiljanleg þér. Ég gæti alveg eins sagt að það væri grunnréttur minn sem hvíts manns að útrýma óæðri kynþáttum því þeir þvælast fyrir mér og hindra þar með frelsi mitt og að eina leiðin til að svipta mig þessum rétti sé að koma mér fyrir kattarnef. Og ekki nóg með það, þá notarðu þessi “grunnréttindi” í ennþá...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Öll réttindi, hvaða nafni sem þú vilt kalla þau, eru tryggð af samfélaginu og ríkið sér um að setja þau í lög og sjá til þess að þeim sé fylgt eftir. Þar með er það ríkið sem tryggir þau. Og síðan talarðu um að ef þú tekur einhverjar spýtur og hendir þeim saman í stól þá fáirðu sjálfkrafa rétt á því hindra frelsi annarra til að koma nálægt þessum spýtum. Ég er reyndar sammála því að þú eigir að hafa þessi réttindi, en þau eru ekkert sjálfgefin. Og þetta tal um að skattlagning á vinnu manns...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Athugaðu að ég sagði ekkert um það hvort eignarréttur eigi rétt á sér eða ekki, bara að hann væri frelsisskerðing. Frjálshyggjumenn snúa oft út úr eignarréttinum þannig að fyrst hann sé til staðar í samfélaginu á annað borð þá hljóti hann að vera svo heilagur að ríkið megi varla taka neinn skatt af fólki. Það er fáránlegt því alls staðar þar sem ríkið veitir þann rétt þá hefur ríkið líka rétt á því að skattleggja fólk til þess að geta borgað fyrir alls konar dót eins og td...

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Jú, mikið rétt.

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Eignarréttur er þá einfaldlega frelsið til að skerða frelsi annarra.

Re: Mér finnst að...

í Stjórnmál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ert þú ekki víðfrægur trollari? En alla vega, jú, eignarréttur er frelsiskerðing. Það liggur bara í hlutarins eðli. Ef þú átt eitthvað þá hef ég ekki frelsi til að nota það nema með leyfi frá þér. Þar með skerðir eignarréttur þinn frelsi mitt til að nota þennan hlut. Dæmi: Þú átt lóð og bannar mér að labba á henni. Þar með ertu búinn að skerða frelsi mitt til að fara þangað sem ég vil. Einfalt, ekki satt?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok