Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Lögleiðing Vs Bann

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Mig langar ekki til að neyta fíkniefna almennt. En mig langar að hafa frelsi til að gera það.” Það er alveg eins hægt að segja: “Mig langar ekki til að taka hluti sem aðrir þykjast eiga almennt. En mig langar að hafa frelsi til þess að gera.”

Re: Rúsínur og íkornar

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Því miður vill það brenna við að fólk taki ekki ákvarðanir á grunni skynseminnar.” Já, en þetta er bara miður ef manni finnst þetta vera miður. “Því vil ég telja að gildi hugmynda felist fyrst og fremst í þeim sjálfum, og því sem mætti kalla rökum þeirra og samhengi” Gildi hugmynda er bara háð rökum í huga þeirra sem hugsa rökrétt. “Hugmyndir einar og sér, vil ég því halda fram, eru óháðar hinu mannlega.” Því er ég ósammála. Hugmyndir eru huglægar og eru bara til sem hugmyndir í huga þeirra...

Re: Fordoma gegn tölvum

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Það er líka kúl að vera nörd.” Ég veit, enda er ég meganörd sjálfur.

Re: Rúsínur og íkornar

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Já, það er rétt að kerfi sem rökrétt hugsandi manneskjur fylgja þarf að vera frekar rökrétt og þarf að vera byggt á einhverjum grundvelli sem þessar manneskjur eru sammála um án þess að hann sé sannanlegur, eins og td sá grundvöllur að annað fólk sé til og hafi meðvitund eins og maður sjálfur. Ef kerfið væri gallað, þá myndu þessar rökrétt hugsandi manneskjur hætta að fylgja því. En málið er að manneskjur eru einmitt ekki allar svo rökrétt hugsandi. Sumir fylgja gölluðum kerfum sem eru full...

Re: Fordoma gegn tölvum

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Djös nörd ert þú. Nöööööööööööööööööörd.

Re: mér finst

í Tilveran fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Mér finnst að það eigi að vera tvö N í “finnst”. En það er bara mitt persónulega álit.<br><br><font color=“red”>Pacman:</font> <b>ztYx | MadKillah</b> <font color=“blue”>Tetris:</font> <b>h4x3Rz | MazterHaxer</b> <font color=“lime”>Pong:</font> <b>XixoX | Bl4zTer</

Re: Rúsínur og íkornar

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Það þarf svo sem ekkert að vera málið að hafa kerfin nógu einföld en siðferðiskerfin þurfa heldur ekkert að vera mótsagnalaus. Þau þurfa svo sem ekkert að vera neitt, þau bara eru eins og þau eru. Og hvort þau eru gagnslaus er spurning. Er lífið ekki gagnslaust? Það hefur bara það gagn sem við gefum því og þessi siðferðiskerfi eru bara eitt af þessum gögnum sem við gefum því. Og ef maður er betur settur án gagnslausra fyrirbæra þá er maður betur settur dauður og ekki til og laus við hið...

Re: Hryðjuverkaárásir á Ísland!

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég veit ekki alveg af hverju, en þegar þú segir þetta sé ég fyrir mér senu þar sem einhver hryðjuverkamaður ætlar að skjóta Dabba, en Hannes Hólmsteinn stekkur fyrir skotið. Ég er líklega bara svona skrítinn.

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“enda færi það bara illa ;)” Þú meinar “enda færi það á þann veg sem við viljum ekki”. Þetta eru nákvæmlega sömu rök og eru fyrir öllum stjórnmálastefnum.

Re: Rúsínur og íkornar

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Ég er raunar á því að öll sifræðileg kerfi eða kenningar, séu að einhverju leiti galin (glóru laus), bara misjafnlega mikið.” Tilveran er einmitt líka glórulaus. “Eftir nokkra umhugsun hlýtur hver og einn að sjá hve erfitt er að byggja kerfi siðlegrar breitni, sem gengur upp, þeas kerfi sem er ekki í mótsögn við sjálft sig” Ekki ef kerfið er ofureinfalt. Ef kerfið er þannig að það er siðferðislega rétt að ganga í grænum skóm og rangt að ganga í öðruvísi litum skóm þá þurfa ekki að koma upp...

Re: STÓRI BRÓÐIR !

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
En þeir kalla hann vitlausu nafni. Slíkt er ófyrirgefanlegt. Auk þess hafa þeir ýmsa aðra siði en við, sem eykur á réttdræpi þeirra.

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Til að vernda eignarrétt gaursins sem á´bílin” Já, en eignarrétturinn er frelsisskerðing í sjálfu sér. Það er það sem ég er að tala um. Hvað gefur gaurnum eða yfirvöldunum raunverulegan rétt til þess að hindra frelsi mitt og banna mér að eyðileggja bílinn “hans”? “ekki að við séum að boða takmarka laust frelsi heldur bara sem minnstu takmarkairnar til að vernda frelsið sjálft =)” Þú meinar “til að vernda okkar útgáfu af frelsi”.

Re: Gráa skýið!!

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
“Geturu gefið mér eina ástæðu fyrir að hugarar ættu að trúa þessu annað en orð þín (og annara)?” Nei, enda er þetta argasta bull, rétt eins og greinin.

Re: Við erum frjáls

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég var að pæla í þessu með frelsið og síðan eignaréttinn. Snýst eignarétturinn ekki einmitt um frelsisskerðingu? Þeas að aðrir hafi ekki frelsi til þess að nota þá hluti sem maður á?

Re: Gráa skýið!!

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þær sögðu mér frá þessu áður en greinin var skrifuð og meira að segja áður en hin greinin var skrifuð. Og já, ég trúi honum þegar hann segist dreyma grænt ský því það er í samræmi við spádóminn og í samræmi við það að hinar tvær manneskjunar hafi dreymt grænt ský. Ástæðan fyrir því að hann dreymdi skýið grátt fyrst er örugglega sú að skilaboðin frá andaheiminum voru svo veik að hann sá skýið litlaust þ.e.a.s. grátt.

Re: Gráa skýið!!

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Grátt ský er bara bull. Það táknar ekki heimsendi. Það gerir grænt ský hinsvegar. Sálin hans hefur örugglega bara ekki séð að skýið var grænt fyrst um sinn eða þá að skilaboðin voru svo veik að hann sá bara ský en ekki litinn. Af hverju ættu þessar tvær manneskjur að vera að með grænt ský á heilanum?

Re: STÓRI BRÓÐIR !

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ha, neineineinei, það gengur ekki. Að fara að skjóta kristna. Það gengur ekki. Við kristnir trúum á réttan guð. Það gera múslimar ekki.

Re: Gráa skýið!!

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Nei, nei hann er ekkert að ljúga þessu. Ég þekki líka tvo aðra sem dreymdi þetta sama. Mér finnst það einum of mikil tilviljun að það séu þrjár manneskjur sem dreymi þetta sama.

Re: STÓRI BRÓÐIR !

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þá er bara að skóta alla múslima. Það gengur ekki að þetta fólk sé að skerða frelsi okkar og beita okkur ofbeldi.

Re: Gráa skýið!!

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Grín hvað? Þetta er ekkert grín. Heimsendir (þ.e. sá sem skrifaði greinina) hefur greinilega verið að grufla í hinum fornu fræðum Súmera og lesið rit eftir spámennina Shakor og Kalbor. Í skrifum þeirra er sagt mjög skýrt frá þessu. Ég skal bara skrifa niður smá hluta úr “Því ókomna” eftir Kalbor: “Og er hinsti dagur nálgast og Jörðin gleypir lífið þá munu nokkrir útvaldir dreyma græn ský, ský örvæntingar og dauða” Að vísu veit ég ekki hverjar þessar bláu verur eiga að vera, en mig grunar að...

Re: STÓRI BRÓÐIR !

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þá er bara að banna öllum aröbum og öðrum sem líkur eru fyrir að séu múslimar að vera flugmenn. Maður verður jú að skerða frelsið til að vernda það.

Re: Rúsínur og íkornar

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Já, þetta er víst rétt hjá þér. En það sem ég var aðallega að pirra mig yfir því að VeryMuch sagði að engum hefði tekist að breyta siðferðislega rétt.

Re: Rúsínur og íkornar

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Siðferði er bara til í hugum fólks og er byggt á “af því bara” eins og þú segir. En það þýðir ekki að það sé ómögulegt að gera eitthvað sem er algerlega sjálfslaust. Ef manneskja deyr fyrir eitthvert mannréttindasiðferði sem hún trúir á, þá er hún að gera það fyrir það sem hún telur vera heildinni fyrir bestu en ekki sjálfan sig. Ég veit svo sem ekki um nein ákveðin dæmi um þetta en ég er viss um að fullt af fólki hefur gert það í gegnum tíðina, og þá ekki bara í þeim tilgangi að komast til...

Re: Varðandi Manhunt...

í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ástæðan fyrir því að fólk vill banna ofbeldisfulla leiki eins og t.d. Manhunt er sú að það óttast að börn sem spila leikinn fari að finnast ofbeldi flott og verði ofbeldisfull. Ég er líka nokkuð viss um að hryllingsmyndir sem fari yfir strikið í ofbeldi hafi verið bannaðar víðsvegar.<br><br><font color=“red”>Pacman:</font> <b>ztYx | MadKillah</b> <font color=“blue”>Tetris:</font> <b>h4x3Rz | MazterHaxer</b> <font color=“lime”>Pong:</font> <b>XixoX | Bl4zTer</

Re: Hve langt mega ummæli Davíðs ganga?

í Deiglan fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Óháð því hvað er til í þessu og hvort hann er hræsnari eða ekki þá á hann að geta sagt þetta ef hann vill.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok