Persónulega held ég að 4 ár séu nægjanlegur dómur. Ég átti allt eins von á minni refsingu miðað við mörg önnur kynferðisbrotamál hér á landi. Þar að auki er þessi maður nú þegar búinn að eyðileggja líf sitt (ásamt því að skemma líf fórnarlambanna) og hann mun ekki eiga auðvelt með að fá vinnu aftur, hvað þá vinnu sem myndi tengjast börnum. Að auki finnst mér að það ætti að veita honum sálfræðihjálp á meðan á fangelsisvist hans stendur, því augljóslega á hann við eitthvað vandamál að stríða!