Mér finnst alveg frábært að þetta áhugamál sé að lifna við og einnig finnst mér alveg frábært að vita af því að það eru fleiri en ég sem byrja að hlakka til jólanna í júní. Í sambandi við það hvort jólin komi of snemma í búðirnar þá finnst mér það allt í lagi, það er fínt að geta keypt gjafirnar og skreytingarnar snemma og njóta þess að vera búin að öllu í desember. Mér finnst líka allt í lagi að fá skreytinganar upp snemma og get ekki beðið eftir að jólaljósin fari að lýsa upp skammdegið og...