Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

sylpha
sylpha Notandi frá fornöld Kvenmaður
110 stig

Ég er dauðhrædd...... (20 álit)

í Börnin okkar fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Ég er 27 ára gömul og er lengi búin að reyna að verða barnshafandi (u.þ.b. 3 ár)en því miður hefur það ekkert gengið. Ég fór í skoðun hjá kvensjúkdómalækni núna síðast í haust og þá kom í ljós að ég er með legslímuvillu og einhverjar blöðrur í eggjastokkunum. Ég var látin taka primolut og pergotime og athuga hvort að það hjálpaði eitthvað, en ekkert gerðist og við hættum að hugsa um þetta í smá tíma ( manni er alltaf sagt að hætta bara að hugsa um þetta og þá gerist það). En núna er liðinn...

Flogaveiki (5 álit)

í Heilsa fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Kæru Hugarar! Ég hef núna nýlega verið greind með flogaveiki, og með nýlega meina ég fyrir 2 vikum. Ég er svona rétt að komast yfir sjokkið sem ég fékk þegar ég heyrði þetta fyrst og núna eru að kvikna hjá mér alls konar spurningar sem ég hafði ekkert pælt í áður. Ég á ennþá eftir að fara í frekari rannsóknir til að kanna hvað það er sem veldur flogunum hjá mér en fyrstu rannsóknirnar sýndu eitthvað tómarúm í heilanum öðru megin. Ég er alveg dauðhrædd við þetta núna þó að ég geri mér grein...

Er þetta framtíðin? (14 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Mig dreymdi mjög raunverulegan draum í nótt. Mér fannst ég vera niðri í bæ og að ég væri að fara að skoða ráðhúsið í fyrsta sinn á ævinni (ég hef aldrei skoðað ráðhúsið) en þar sem ég var stödd í ráðhúsinu þá heyrast allt í einu miklar sprengingar og skothvellir. Mér bregður alveg rosalega og fer inn á einhverja skrifstofu þarna í ráðhúsinu en þar var þá staddur Davíð Oddson ásamt öðrum ráðherrum og þar frétti ég að japanir og kóreumenn hefðu gert árás á Ísland. Þeir voru með herskip í...

Barbie föt á Sims (27 álit)

í The Sims fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég var að skoða tengla síðurnar hér fyrir neðan og rakst inn á síður sem heitir Barby loves to shop þar er hægt að fá Barby skinn og virkilega töff föt á hana. Þetta er alveg ógeðslega sniðug hugmynd því hver á fleiri og flottari föt en Barbie sjálf. Enn sem komið er eru bara nokkur skinn inni á síðunni en ég bíð spennt eftir fleirum og skoða síðuna á hverjum degi. Svo vantar bara Ken og allar vinkonur Barbie sem maður gæti downlodað líka og svo getur maður bara farið að leika sér með Barbie...

Lasanja (4 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég er í matar aðhaldi þessa dagana og hef verið að prófa mig áfram með fituminni uppskriftir. Í dag ákvað ég að prófa að búa til lasanja þar sem að það er einn af mínum uppáhaldsréttum. Ég hef alltaf keypt svona Knorr pakka lasanja og fundist það mjög gott en nú ætlaði ég að búa það til sjálf og það heppnaðist alveg ótrúlega vel þó ég segji sjálf frá. Það var enginn eiginleg uppskrift heldur setti ég bara eitthvað saman sem ég átti í ísskápnum og það var nokkurn veginn svona. 350 gr...

Var þetta draugagangur? (12 álit)

í Dulspeki fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég og kærastinn minn við búum í lítilli íbúð í miðbænum. Við leigjum hana bara tímabundið vegna þess að eigandinn er að reyna að selja hana. Hann þ.e. eigandinn hefur ekki sagt okkur hvers vegna hann vill selja íbúðina en stelpa sem þekkir hann sagði okkur að það væri vegna draugagangs. Við erum búin að vera í þessari íbúð í dálítinn tíma en ekki orðið vör við neitt fyrr en í fyrrinótt. Ég trúi á drauga og tel mig hafa séð a.m.k. einn en ég hef aldrei verið hrædd við drauga fyrr en þessa...

Jú víst er einhver ástfangin(n)...... (8 álit)

í Rómantík fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Hér var spurt hvort ekki væri einhver ástfangin á huga.is og ég vil endilega deila minni ástarsögu með ykkur. Ég og kærastinn minn erum búin að vera saman í tvo mánuði og ég hef aldrei upplifað aðra eins sælu og hamingju á allri minni ævi. Við erum alltaf að gera eitthvað rómantískt eða kannski finnst mér það bara vera rómantískt vegna þess að ég er með honum. Ég get horft í augun á honum tímunum saman og við erum alveg í vandræðum með að halda okkur vakandi á daginn vegna þess að við eyðum...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok