Þetta fer allt eftir því hvað þú ætlar þér í fluginu. Ef þú ert einkaflugmaður og ert að leita að fjölbreyttum flugvélum til að fljúga þegar þig langar til og ert jafnvel í leit að auknum réttindum (t.a.m. IR), er Geirfugl tvímælalaust rétti klúbburinn fyrir þig. Ef þú ætlar hins vegar í atvinnuflugmann og vantar vélar til tímasöfnunar er Geirfugl ekki rétti klúbburinn. Í Geirfugli er 60 tíma kvóti á ári (meira en nóg fyrir flesta einkaflugmenn), en ef þú flýgur meira en kvótanum nemur,...