Þetta er mjög áhugaverð spurning og alls ekki jafn auðvelt að svara henni og maður hefði haldið í fyrstu.
Á síðunni
http://www.propellergovernor.com/how-it-works/ kemur fram: “The actual blade angle required for given rpm depends on the horsepower being developed and the airspeed of the aircraft. However, the governor senses only RPM.”
Af þessu má ráða að skurður loftskrúfunnar ræðst af samspili hreyfilafls og loftflæðis kringum loftskrúfuna og því mætti segja að þú hafir rétt fyrir þér. Hins vegar skynjar governorinn sem stjórnar skurðinum aðeins snúningshraða hreyfilsins og reynir að viðhalda umbeðnum snúningi út frá þeirri skynjun. Þar af leiðir að skurður loftskrúfunnar er stilltur út frá snúningshraða eingöngu.