Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Snilldarhönnun að deyja?

í Apple fyrir 24 árum, 10 mánuðum
án viftu hvað? Það er vifta á flest öllum skjákortum fyrir Mac þannig að það verður seint sagt að hún sé viftulaus! og hannanú!

Re: No more [.Hate.]zlave :(

í Half-Life fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Öruggar heimildir VON manna herma að zlave hafi sett sig í samband við æðsta leiðtoga okkar, [VON]Herula. Hvað þetta þýðir veit ég ekki. Annars er ég bara hress. [VON]GummiJoh

Re: Concert í vandræðum - Íslandssími líka!!!

í Farsímar fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Vinur minn var í Tyrklandi núna um daginn og síminn hans sem er tengdur hjá Íslandssíma var ekki EINU SINNI inni á meðan sími kærustunnar sem er hjá Símanum var inni allann tímann. Svo þegar þau fóru til Köben var sími vinar míns dettandi út og inn, út og inn en sími kærustunnar var inni allann tímann. Hann hringdi í Íslandssíma þegar hann var í Tyrklandi og þeir bara „HA, virkar þetta ekki?" og gátu ekkert hjálpað honum.

Re: Eintóm Hamingja

í Half-Life fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ég fyrir hönd hins þögla meirihluta megaklansins VON vill spyrja hvort þetta þýði að Aimbot 2.6 virki þá ekki? Bara svona að pæla. [VON]GummiJoh einnig þekktur sem 0WnaRinn -All your base belong to me

Re: CS og win2000 vandmál

í Half-Life fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Allir leikir keyra jafnvel og stundum betur en í ME, það er mín reynsla. Þetta er eini leikurinn sem ég spila á netinu og hann er að rugla í mér, þoli þetta ekki.

Re: CS og win2000 vandmál

í Half-Life fyrir 24 árum, 10 mánuðum
afhverju skil ég EKKERT hvað maðurinn er að fara?

Re: Windows XP RC1 er á næsta leiti

í Windows fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ég hef einmitt verið að nota betu 2504 núna í nokkurn tíma og er bara mjög ánægður enn sem komið er. Allt virkar eins og það á að gera. Stundum ruglar vélin í mér en það er bara eðlilegt þegar notaðar eru betur sem þessar. Lofar vissulega góðu.

Re: Windows 2000 problem

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Biosinn er tweakaður já en ekkert of mikið neitt. Annars held ég að þetta sé komið í lag. Ég tók einn minniskubbinn úr vélinni og var í Win2000 í allt gærkvöld á netinu, spila CS, taka myndir af digital vélinni yfir á tölvuna og var uppi í svona 5 tíma sem er met. Þannig að minniskubburinn hefur verið sá sem var með þessi vandræði vona ég.

Re: Rusl eða hátæni ! ! !

í Farsímar fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Síminn hefur hafið sölu á nýjum Sagem síma sem reynst hefur vel. Minn maður hjá Símanum sagði mér að þeir hefðu prufað hann vel áður en hann var tekinn í sölu. Kom víst vel útúr því og ætti að koma í sölu bráðlega. Sagem er stórt fyrirtæki úti í heimi og fá símarnir þeirra oftast góða dóma.

Re: Frelsi í útlöndum ! !

í Farsímar fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Hvað er flókið við það að sækja um áskrift?? Ekki neitt! En annars hefur maður heyrt margar sögur um Tal og útlandanotkun. Oft rukka þeir mörgum mánuðum seinna fyrir útlandanotkun. Einn félagi minn lenti í því að hann gat bara hringt innanlands símtöl á Spáni en ekki úr Spáni á meðan félagar hans með Símakort gátu hringt að vild. En annars ætla ég bara að halda mig við Símann því ég er ánægður með þjónustuna og síminn minn er alltaf inni. Ég skipti ekki fyrr en það breytist. Annars fín...

Re: B-mynd???

í Sci-Fi fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Ég trúi ekki að það sé verið að tala um þetta! Búið að velta sér uppúr þessu nóg. Jar Jar Binks er bara comic relief gaurinn í Phantom Menace. Margir hötuðu hann eftir þessa mynd. Eftir episode IV var C3-P0 hataður og eftir Empire Strikes Back var það Yoda sem var hataður og eftir Return of the Jedi voru það Wicket og félagar af Ewokakyni. Þetta hefur alltaf verið svona að einhverjir karakterar eða hópar hafa verið hataðir. Það er nú bara einu sinni þannig að þetta eru barnamyndir. Ég hef...

Re: SMS - auglýsingar !!!!

í Farsímar fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Síminn sér ekki um þessar auglýsingar heldur eitthvað fyrirtæki sem heitir Kast eða eitthvað þannig. Ég hef litla trú á að svona fyrirtæki geti fengið nógu marga auglýsendur fyrir svona apparat sem hefur ekki sannað sig. En það er aldrei að vita. Gefum þessu tíma.

Re: PlayStation 2 (Allt sem þú þarft að vita)

í Final Fantasy fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Fín grein og allt það en eitt pirrandi sem kemur oft fyrir í greininni. Þetta heitir örgjörvi! ekki örgjafi! :)

Re: .pps skrár

í Netið fyrir 24 árum, 11 mánuðum
þetta er powerpoint skjal! það er nóg að setja upp powerpoint viewer sem er lítil skrá og þá geturðu skoðað skjalið. Þú getur náð í viewerinn t.d. á tucows.simnet.is

Re: Lyklaborð

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ole Ole Ole Ole Ole Ole! Ég lagaði þetta sjálfur. Veit bara ekki enn hvernig, ég var að fikta í registryinu fyrir lyklaborðið og þetta hefur ekkert gerst í kvöld. Hver er l337 núna? ha? :) Þakka ykkur samt fyrir! Kveðja, Gummijoh gummijoh.net

Re: Vondukarlar i Episode 2 ......

í Sci-Fi fyrir 24 árum, 11 mánuðum
væri nú ekki gaman að hafa þetta áhuga mál spoiler free???? Eða hafa sérkort þar sem má tala um þá.. bara svona að pæla!

Re: Game voice

í Half-Life fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Við í [VON] erum aðeins búnir að prufa þetta. Nokkrir okkar fengu sér tækið líka og líkar okkur vel af því litla sem við höfum prufað það. Gæðin eru óneitanlega betri og allt er þetta voða auðvelt. Meiri reynsla kemur á þetta hjá okkur um leið og ákveðnir [VON]Herular skipta yfir. :) Annars er ég bara hress! :) [VON]GummiJoh

Re: hvernig vifta/heatsink fyrir t-bird 1333?

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Sko! Best er bara fyrir þig að fara á amd.com og sjá hvaða viftur þeir mæla með. Það er alltaf best. Ég fékk mér CoolerMaster viftu sem kom vel út úr prufunum á tomshardware.com og hún kostaði ekki mikið hér á klakanum.

Re: Trúbrot - Lifun

í Rokk fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Karl Sighvatsson dó fyrir nokkrum árum. Þá var hann organisti í Hveragerði. Gunnar Jökull var á sínum tíma búsettur í Bretlandi og var í hljómsveitinni Yes! en flutti svo til Íslands og þá urðu Yes! heimsfrægir. Lag númer sex á Lifun sýnir best hvað Gunnar Jökull er ótrúlegur trommari því hann er eiginlega að taka sóló allt lagið. Fyrir nokkrum árum var sagt í Rolling Stone blaðinu að Gunnar Jökull væri einn besti trommari allra tíma. Fyrir þá sem eitthvað þekkja til tónlistar er gaman að...

Re: íslenskur CS

í Half-Life fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Þú getur náð í íslenski hljóðin á ss.snigel.org

Re: HL problem

í Half-Life fyrir 24 árum, 11 mánuðum
tékkaðu hvort CIH vírus sé í vélinni. þetta sama kom hjá mér einu sinni útaf þessum vírus.

Re: DVD myndir frá Myndform.

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Gott að þetta sé komið á hreint. En það er ekki rétt að DVD skrifarar séu ekki til á landinu. Auglýsingastofan Gott Fólk á einn slíkann sem hefur staðið sig vel.

Re: simnet deilan?

í Half-Life fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Þetta er asnalegasta deila sem til er finnst mér. Simnet er að standa sig vel finnst mér. ADSL net Landsímans keyrir á tölvum. Tölvur frjósa, það þekkjum við öll, og þá dettur netið niður. Við erum eyja þannig að við treystum á að línan sem liggur héðan og til Bandaríkjanna sé alltaf í lagi. Oft hefur komið fyrir að sjómenn hafi skorið línuna í sundur og þá dettur netið niður þangað til að Síminn leiði umferðina í gegnum gervihnetti sem tekur miklu lengri tíma. Oft kemur líka fyrir að...

Re: USB 2.0 og MicrosoftXP

í Vélbúnaður fyrir 25 árum
Intel: The industry has known for months that Microsoft doesn't plan to provide in-box support of USB 2.0 in its initial release of Windows XP. However, on several occasions over the past few months, such as the Intel Developer Forum and WinHEC, Microsoft has announced plans to deliver USB 2.0 driver support when Windows XP is released. We aren't anticipating any issues with industry acceptance, in fact, USB 2.0 is now market ready, which was announced at the Spring Intel Developers Forum in...

Re: Spurning um móðurborð.

í Vélbúnaður fyrir 25 árum
auðveldast fyrir þig að fletta bara upp móðurborðinu upp á google.com. Ef það fær góða dóma á nokkrum síðum ertu kominn með gott móðurborð. ég t.d fékk mér aopen ak73 pro því ég var bara búinn að lesa gott um það á hinum og þessum síðum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok