Ég keypti mér einu sinni verkfæratösku í On/Off á 1200. Ég vildi bara hafa þetta til að fixa litla hluti en ekki að standa í stórviðgerðum. Svo fór sem fór og þegar að ég lánaði vini mínum töskuna, eyðilagði hann skrallið :( En hey ég á ennþá allt hitt og hef notað ma til að skipta um tímahjól, kerti og dekk. En svo veit ég sögu af einum strák sem er bifvélavirki og ætlaði að safna sér verkfærum til að geta opnað eigin verkstæði en því miður þá var öllu stolið frá honum.