Norður-Kórea er alveg einstaklega lokað land og ferðamenn fá aðeins að sjá það sem yfirvöld þar í landi leyfa þeim að sjá. Svo á víst að vera bannað að fara þangað með hluti eins og farsíma, upptökutæki, kort, dagblöð (væntanlega erlend) o.fl. Við landamæri Kóreulandanna tveggja, DMZ, eru tvö þorp. Annað þeirra heitir Freedom Village í S-Kóreu en hitt heitir Propaganda Village í N-Kóreu. Í Áróðursþorpinu býr enginn, heldur samanstendur það aðeins af fínlegum gervibyggingum og hæstu fánastöng...