Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þetta var einmitt í Þýskalandi sem gefur sig út fyrir að styðja “jöfnuð” og vera félagslegt ríki. Félagsmótun ræður mun meiru um svona lagað heldur en raunveruleg efnahagsleg staða foreldra. Í þessu samhengi má t.d. nefna að í 200 stærstu fyrirtækjum Frakklands er um helmingur stjórnenda úr ríkri og voldugri fjölskyldu, í Þýskalandi er þetta hlutfall fjórðungur en einungis 10% í BNA, landinu sem gefur sig ekki út fyrir að vera “félagslega sinnað” eða styðja jöfnuð. Félagsmótun er mjög erfitt...

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Það er líka alveg rétt, spítalarnir eru mjög fullkomnir og læknar með þeim bestu í heimi. Hins vegar eru spítalar ekki nægilega skilvirkir og læknar of fáir sem meðal annars lýsir sér í því hversu margir bandaríkjamenn eru án heilsutrygginga.

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þú getur kallað það hvað sem þú vilt, þetta er bara ekki rétt.

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Vó rólegur á alhæfingunum, ég er sammála þér með þennan gutta en það er nú til fólk með viti, samkennd og kærleika inni í sjálfstæðisflokknum.

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Það er gaman frá því að segja að síðan skattar á fyrirtæki voru lækkaðir úr 50% í 18% hafa skatttekjur ríkisins vegna tekjuskattsfyrirtækja aukist mjög. Aukin heldur hafa afleiddar tekjur t.d. vegna launahækkana, margföldunaráhrifa o.s.frv. hækkað mjög.

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Kannski vegna þess að heilbrigðiskerfið í BNA er gott dæmi um hvernig á ekki að einkavæða heilbrigðiskerfi. Þ.e. því eru settar svo miklar hömlur og skorður að afar hæpið er að telja það lúta lögmálum frjáls markaðar?

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þú skalt nú ekki vera að tengja þennan dreng við okkur frjálshyggjumennina.

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Che var líka morðingi. Hvernig getur sá sem tekur líf sjálfum sér til framdráttar verið góður maður?

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hvar lærðir þú hagfræði?

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hvað ertu að tala um? Ég hef heyrt vitsmunalegra svar frá dauðadrukknu fólki

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Æ takk, ég reyndi :D

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
En þá lyfjafyrirtæki sem bjarga milljónum mannslífa á hverju ári, eru það ekki viðskipti með líf? Eða þegar flugfélög fljúga með nokkur hundruð manns í hverju flugi, þetta fólk gæti vel dáið í hroðalegu slysi. Er það þá ekki viðskipti með líf? Hvað þá með byggingarverktaka sem reisa húsin okkar sem verða að standast hitt og þetta, eru það ekki viðskipti með líf?

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þetta er ekki rétt nálgun hjá þér. Þó þeir búi við meiri lífsgæði og betra heilbrigði almennt þýðir ekki að þeir hafi meiri rétt til að lifa þar sem hinir fátæku hafa jafnan rétt til að fjárfesta í sömu þjónustu og hinir efnameiri. Hins vegar hafa þeir ekki efni á því þ.e. þeir eru ekki í jafnri stöðu. Þetta er hugtaka ruglingur hjá þér. Jafn rétti og jafn staða er ekki það sama. Og mér finnst ekkert að því að einstaklingar búi ekki við jafna stöðu. Hvað varðar börnin. Börnum beita vinstri...

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Og í sambandi við orðspor fyrirtækja. Hvort myndir þú frekar kaupa þér Sony sjónvarp eða Sonny? Hvort heldurðu að sé betra? Hvort eru Ford eða trabant betri bílar? Orðspor skiptir gríðarlega miklu máli. Um leið og ákveðinn vara er farinn að fá mikla neikvæða umfjöllun ( jafnvel á vettvangi þessa fjórða valds sem þú virðist vera svo hrifinn af) þá minnkar eftirspurn eftir henni og fyrirtækið tapar peningum. Á markaðnum er fyrirtækjum refsað miskunnarlaust standi þau sig ekki.

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
,,Til að hafa bilið milli ríkra og fátækra sem minnst´´ Af hverju er það í sjálfu sér eftirsóknarvert? ,,Ef allt ríka fólkið fer á einkareknu sjúkrahúsin verða þau smám saman fínni og fínni og geta ráðið til sín bestu læknana.´´ Já, það er einmitt málið. Hvert er vandamálið? ,,Og þetta með orðsporið er bara útópía og það sjáum við best á pólitíkinni. ´´ Það er einmitt mikill eðlismunur á pólitík og viðskiptum þess vegna er hæpið að líkja þessu tvennu saman. Fyrirtæki veita ákveðna þjónustu...

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Jájá segjum það bara. Þetta er ekki einu sinni fyndið hjá þér. Krakkafífl, hrósa manni sem ber ábyrgð á dauða tuga milljóna manna. Hefurðu ekkert siðferði?

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
já heyrðu ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem þú hefur rétt fyrir þér, ég er á algjörum villigötum. Afsakaðu.

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
,,Því heilbrigðiskerfi er soldið sem á ekki að snúast um hagsmuni fárra einstaklinga!´´ Sammála þér, fyrirtækið verður að veita þjónustu sem allir hafa efni á. Auk þess er hægt að framkvæma þetta með því að breyta þessum þætti almannatryggingakerfisins í einkarekstur og nýta þar með enn frekar kosti frjáls markaðar. ,,Svo líka um einkarekna spítala þá trúi ég alveg mannfólki til að verða blint í græðgi. Skilja smá af æxlinu eftir til að hann komi og borgi aðra aðgerð.´´ Fyrir það fyrsta væri...

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hann var að tala um algjörlega frjálst ríki og þá nefnir þú BNA, ég hlæ að þér! Grínlaust.

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hey ég man eftir manni sem sagðist vera gyðingahatari og var svo sannarlega stoltur af því. Hann hét Hitler. Vona að þú sért ekki stoltur af félagsskapnum.

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
,,Kapítalískt heilbrigðiskerfi verður alltaf óskilvirkt og lélegt og alltof dýrt.´´ Haha og hvað hefurðu fyrir þér í því? Heilbrigðiskerfið í BNA sem er bundið með þvílíku reglugerða fargani að það eyðileggur alla möguleika “einkareknu” spítalanna til að hagræða hjá sér og raunverulega nýta sér kosti markaðarins? Og af hverju ætti það svo sem að vera að frjáls markaður sé betra rekstrarform á öllum sviðum nema þessu?

Re: Lestu þessa grein og lífið þitt mun breytast- Illuminati

í Deiglan fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Hvernig vill það til að þú ert boðberi hins heilaga sannleiks?

Re: Gleðjumst

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
,,Herði útlendingalögin.´´ Af hverju? Svo íslenskur iðnaður og viðskiptalíf hætti að vera samkeppnishæft á alþjóðlega vísu? Er það eftirsóknarvert? Eða ertu kannski bara á móti fólki sem hefur annan húðlit en þú? ,, eina þjóðin í heiminum sem setur ennþá siðferðismál á oddinn.´´ Ertu þá að meina að meirihlutinn kúgi sinni skoðun upp á minnihlutann? Er það að setja “siðferðismál” á oddinn? Og ætti ríkið yfirhöfuð að skipta sér af siðferðismálum?

Re: Umræða

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
,,Nei, þeir þyrftu ennþá að stunda auðgunarbrot af því að fíklar geta ekki unnið eðlilega vinnu.´´ Jamm en efnin eru mun ódýrari og aðgengilegri. Fyrir utan það að hasshausar geta vel unnið, nema þeir séu mjög, mjög langt leiddir. ,,Eina sem myndi gerast er að þeim myndi fjölga.´´ Rökstyddu þetta þakka þér fyrir, ekki fleygja þessu fram eins og staðreynd. ,,Ef lögin væru þannig að það væri dauðarefsing fyrir fíkniefni, þá myndi engin þora að byrja á þeim.´´ Þetta er beinlínis ekki rétt....

Re: Umræða

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ef bann við neyslu fíkniefna yrði afnumið myndi verðið lækka. Þ.a.l. myndi þörf fíklanna til að stunda auðgunarbrot minnka => ergó innbrotum fækkar. Ástæðan fyrir því að morð eru iðulega framin af einhverjum tengdum fíkniefnum er bannið. Bannið gerir heiminn harðskeyttari og verri og því þurfa menn oft að verja sig. Morð tengd fíkniefnum eru því að langmestu leyti tengd banninu. Önnur ástæða til að afnema bannið. Í þriðja lagi er það ekki fyrirséð að þeir sem neyti fíkniefna nauðgi frekar en...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok