Það á eftir að koma í ljós, það eina sem maður kemur auga á eru plasthlífar, rafmagnskaplar og eitthvað sem gæti verið blöndungur. Finnst þó ólíklegt að það sé bara einn (4 stimplar). En þau eru þarna einhversstaðar undir, það er bara rosalegt mál að komast í þau, þarf að rífa helling í sundur. Er ekki með verkfæri til þess hérna, en fer með hann í bílskúr í vikunni. Svo þegar ég er búinn að skipta þá kemst ég pottþétt að því að þetta er alternatorinn. Það virðist þó auðvelt að komast í hann.