Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skuggi85
skuggi85 Notandi frá fornöld 38 ára karlmaður
3.796 stig

Frjálshyggjufélagið um sölu Símans (9 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Er mjög sammála eftirfarandi. En er hræddur um að stjórnvöld eigi eftir að eyða þessum peningum í einhverja vitleysu eins og ný sendiráð eða spítala. __________________________________________ http://www.frjalshyggja.is/?gluggi=alyktun&id=57 Nú þegar íslenska ríkið hefur selt hlutabréf sín í Símanum vill Frjálshyggjufélagið benda á að réttast er að nota andvirði sölunnar til að lækka útgjöld ríkisins nú og í framtíðinni. Upphæð sú sem ríkið hefur nú fengið til ráðstöfunar nemur um fjórðungi...

Your computer is infected.... (14 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 8 mánuðum
http://img.photobucket.com/albums/v11/Shadow18/Infected.jpg Hvernig á ég að losna við þetta? Þegar ég klikka á þetta (rauða hringinn) þá fer það með mig á síðu þar sem hægt er að kaupa anti-virus búnað. Þetta er nú orðið leiðinlegt ef að þeir sem að selja þessa búnaði eru sjálfir að troða svona hlutum gegn vilja fólks í tölvurnar þeirra.

Sirkus/Breiðband... (7 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Veit einhver hvort þeir séu eitthvað að ná að semja? Heyrði fyrir tveimur vikum að þeir væru eitthvað að reyna að semja en svo skeður ekkert. Ætli þeir hafi ekki náð að semja? Er orðinn pirraður á því að sjá Sirkus auglýsingar á Stöð 2 og get svo ekki séð þættina :/

10.000 króna seðill.... (81 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég hef áður tjáð mig hérna á Huga um að það sé löngu kominn tími á að bæta 10.000 kr seðli inn í peningaviðskipti Íslendinga. Var að leika mér að búa þannig seðil til í PhotoPlus og ákvað að deila honum með ykkur…. http://img.photobucket.com/albums/v11/Shadow18/10000.jpg Leiðinlegt þegar hundrað kallinn datt út að hafa ekki lengur grænan seðil.

Tívolíið... (7 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Hversu lengi er tívólíið í Smáralind opið í kvöld?

Spurning.... (10 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ef maður er að vinna á stað sem að er í verkalýðsfélagi sem að hefur þá reglu að maður eigi að fá lágmark 1 hvíldardag á viku. Er þá hægt að gefa manni 2 fullar helgar í staðinn? (4 daga á mánuði) Eða þurfa þeir að gefa manni frídag í miðri viku ef maður vinnur báða daga um helgar?

Lagið með Sylvíu Nótt... (27 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Var að hlusta áðan á Kiss Fm þar sem viðtal var við hana Sylvíu okkar. Svo spiluðu þeir nýja lagið hennar eftir á. Þetta lag er mesta snilld sem íslenskt útvarp hefur fengið. Á eftir að hækka í botn og blasta þetta lag þegar ég keyri í miðbænum í sumar :D

Myndir... (7 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Hvernig væri að hafa það þannig að maður fær skilaboð ef einhver kemur með álit á mynd sem maður sendi inn? Alveg eins og með greinar og korka. Leiðinlegt að þurfa alltaf að tjékka reglulega á myndum í stað þess að bíða bara eftir póstum.

Leigubílar.... (9 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Náði ekki allri fréttinni á stöð 2…. Á að hækka gjald hjá leigubílum vegna breytinga á díeselolíu ? Kostar nú þegar morðfjár að fara í leigubíl hér á landi svo þetta er ekki gott. Vona að ég sé ekki að misskilja.

Enginn bjór, enginn matur. (5 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Hádegisverðarfundi belgískra þingmanna með kollegum frá Íran var í morgun frestað. Þetta væri ekki í frásögur færandi væri ástæðan ekki með óvenjulegri hætti. Írönsku þingmennirnir, sem eru múslímar, kröfðust þess að ekkert áfengt yrði í boði, hvorki fyrir þá né belgísku gestgjafana. Þingmaðurinn Herman De Croo, sem er jafnframt forseti neðri deildar belgíska þingsins, var ekki alveg á því að verða við þessum kröfum og ákvað að aflýsa einfaldlega hádegisverðinum. Ástæðan: Hádegisverðarfundi...

Kvartmílubrautin lokuð.... (3 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Nú er kvartmílubrautin alltaf lokuð almenningi, svo ég var að spá. Er einhver staður nálægt höguðborgarsvæðinu þar er hægt að finna góðan veg eða eitthvað til þess að leyfa einstaklingi sem er ekki með bílpróf að prófa að keyra ?

Self CheckOut ekki á Íslandi... (19 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Nú eru nokkur ár liðin síðan sumar verslanir í Bandaríkjunum tóku upp “self checkout” kerfi í matvöruverslunum. Kerfi þar sem viðskiptavinurinn getur afgreitt sig sjálfur. Það frábæra við þetta kerfi er að allir kassanir eru alltaf opnir, þannig að biðraðir verða stuttar eða engar. Fljótlegt fyrir viðskiptavini sem oft eru að flýta sér. Þessir kassar eru reyndar margfalt dýrari en venjulegir búðarkassar. En búðirnar ættu að vera fljótar að borga þá upp og fara í gróða enda þarf fyrirtækið...

Kosningarnar í Íran... (16 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Nú hef ég tekið eftir því að fjölmiðlar hér á landi hafa verið að fjalla um nýkosinn forseta Írans, stefnur hans og fleira í þeim dúr. En af hverju fjallar enginn fjölmiðill um það að þetta sé bara sýning fyrir heimsbyggðina ? Íran er langt frá því að vera það lýðræðisríki sem þeir þykjast vera með þessum kosningum. Þó að þjóðin hafi kosið forseta, þá verður hann samt sem áður ekki farið gegn klerkaráði landsins. Og getur meira að segja verið strengjabrúða þeirra. Svo er líka spurning hvort...

Saddam Hussein geðveikur ? (9 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Maður veit náttúrulega aldrei hvort þetta sé ósatt eða ýkt. En ef þetta er rétt mál þá virðist hann vera dálítið ruglaður karlinn. Mbl.is: Saddam Hussein fyrrum Íraksforseti dáist að Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseta og segir að Bill Clinton hafi verið „í lagi” í forsetaembætti en að bæði George Bush eldri og George W. Bush séu ómögulegir forsetar, samkvæmt upplýsingum fimm bandarískra fangaverðarða sem hafa greint frá samskiptum sinum við hann í viðtölum við bandaríska tímaritið GQ.....

Hrósum Ísraelsmönnum... (15 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Í hver skipti sem það kemur neikvæð frétt frá Ísrael/Palestínu þá eru Huganotendur fljótir að birta það hérna og bölva yfir Ísrael. En þegar það er eitthvað jákvætt þá kemur engin umræða. Vona að allir hafi opið hugarfar nú í stað þess að byrja að hella sér yfir hversu slæmir Ísraelsmenn séu. 15.ágúst næstkomandi munu Ísraelar afhenta Palestínumönnum hertekið svæði á Gaza svæðinu. Til þess að geta afhent svæðið þarf að brottnema 7.500 Ísraelsmenn frá svæðinu, og hjálpa þeim að flytja í ný...

Dorrit og Baugur... (11 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Er ég sá eini sem er skítsama þó hún hafi fengið far með einkaflugvél Baugs ? Skil ekki hvað sé svona hræðilegt við þetta.

Dáleiðsla ? (25 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Er einhver á Íslandi sem bíður upp á að fara í dáleiðslu ?

Tónlist Christinu Aguilera notuð til að pynta fanga í Guantanamo (111 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Slæmur aðbúnaður fanga í Guantanamo á Kúbu, þar sem Bandaríkjamenn hafa í haldi meinta hryðjuverkamenn, hefur sætt gagnrýni víða um heim. Mörg hundruð íslamstrúarmanna mótmæltu notkun Kóransins við yfirheyrslur í síðasta mánuði og margir hafa látist í mótmælaöldum í Afganistan og Pakistan. Danska dagblaðið Politiken greinir frá því í dag að margar aðferðir hafi verið notaðar við yfirheyrslur fanga. Meðal annars hafi þeir verið látnir hlusta á tónlist bandarísku söngkonunnar Christinu...

Benedikt 16. fordæmir fóstureyðingar og hjónabönd samkynhneigðra. (16 álit)

í Deiglan fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Mín vegna má hann hafa sínar skoðanir. En ég er virkilega kominn með leið á því þegar trúarleiðtogar blanda sér í stjórnmál. Finnst eins og þeir ættu aðeins að tjá sig um hvað safnaðarmeðlimir eigi að gera, en ekki hvernig lög í landinu eigi að vera. Trúarbrögð og stjórnmál eru eins og smjör og gos, fara ekki vel saman! Mbl.is… Benedikt 16. páfi fordæmdi í dag fóstureyðingar, hjónabönd samkynhneigðra og erfðaverkfræði, en á sunnudaginn fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla á Ítalíu um...

Hér og nú auglýsingin... (11 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ætli þeir hafi fengið leyfi hjá framleiðendunum til þess að gera þessa auglýsingu ?

Beethoven 5... (24 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Af hverju þarf að sýna svona rusl á laugardagskvöldum ?

Oprah þátturinn.... (1 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Er hægt að fá þáttinn með Svanhildi á netinu ? Á erlendan vin sem langar rosalega að sjá hann.

Til hamingju Ingibjörg Sólrún.... (37 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Reyndar að mínu mati þá var það augljóst um leið og Ingibjörg gekk í Samfylkinguna að hún myndi enda sem formaður. Hún er fæddur leiðtogi og á heima í formannsstólnum. Og þar sem hún fékk 2/3 atkvæða hef ég enga trú á því að flokkurinn klofni. Áfram Ingibjörg!

Leitarhundurinn Dofri aðstoðaði lögregluna við leitina... (20 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Á tíunda tímanum í morgun handtók lögreglan á Ísafirði tvo karlmenn sem voru að koma akandi á sitt hvorri bifreiðinni innan úr Ísafjarðardjúpi og á leið til Ísafjarðar. Karlmennirnir, sem báðir hafa áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála, voru handteknir og framkvæmd var leit á þeim og í bifreiðum þeirra, að því er fram kemur á vef lögreglunnar. Við leit í bifreið annars mannsins fundust rúmlega 7 grömm af kannabisefnum. Fíkniefnaleitarhundurinn Dofri aðstoðaði lögregluna við...

Strákarnir.... (18 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég þoli ekki þá umræðu sem að hefur verið í gangi nýlega um foreldra sem hvetja stöð 2 til þess að seinka þættinum “Strákarnir” eða aflýsa þeim. Þetta er frjálst land og Stöð 2 er ÁSKRIFTARSTÖÐ. Foreldrar ættu bara að hætta að væla og slökkva á sjónvarpinu eða segja upp áskriftinni. Það er ekki eins og þessir þættir séu á ríkissjónvarpinu!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok