Á tíunda tímanum í morgun handtók lögreglan á Ísafirði tvo karlmenn sem voru að koma akandi á sitt hvorri bifreiðinni innan úr Ísafjarðardjúpi og á leið til Ísafjarðar. Karlmennirnir, sem báðir hafa áður komið við sögu lögreglu vegna fíkniefnamála, voru handteknir og framkvæmd var leit á þeim og í bifreiðum þeirra, að því er fram kemur á vef lögreglunnar.

Við leit í bifreið annars mannsins fundust rúmlega 7 grömm af kannabisefnum. Fíkniefnaleitarhundurinn Dofri aðstoðaði lögregluna við leitina.

Mennirnir voru í haldi lögreglu fram á miðjan dag, en þá var þeim var sleppt. Mál mannsins sem efnin fundust hjá verður sent lögreglustjóra til sektarmeðferðar innan skamms.