Hef ekki séð gömlu en ég fór á þessa aðallega af því að Chad Michael Murray leikur í henni, er mikill aðdáandi hans. Flestir þekkja hann örugglega sem One Tre Hill krúttið. :D En já ég varð ekkert fyrir vonbrigðum. Ég er samt kannski sáttari en margir aðrir að hafa vissa formúlu í svona myndum. Flestir sem að fara á þær eru ekki beint að leita eftir efnismiklum söguþráði. Maður býst við poppkornsmynd með atriðum sem manni bregður af eða finnst vera ógeðslega, stundum er það alveg þess virði...