Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

skitakall
skitakall Notandi frá fornöld 43 ára karlmaður
366 stig

Re: Lögleiðing fíkniefna

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
mAlkAv, ef að fíkniefnaglæpir eru ekki glæpir án fórnarlamba, þá hlýtur áfengissala ríkisins að vera rosalegur glæpur með mörgum fórnalömbum, því það ríkið þarf sko að gjalda fyrir heimsku drykkumannana, og það að reykja sígarettur er því líka glæpur með mörgum fórnarlömbum, á sömu forsemdum og áfengis- og fíkniefnaglæpir. - þú svaraðir þessu ekki! Er ríkið þá og neytendurnir glæpamenn og samfélagið fórnarlambið mAlkAv; Segðu mér, hverju skilar bann á fíkniefnum? Er það ekki þannig að um...

Re: Lýðræði í verki

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
í þessi 4 ár geta þeir gert allan andskotann, þeir verða kanski ekki kosnir aftur, en samt þeir geta gert það sem þeim sýnist. Sagan segirðu, Áfengisbannið í USA…. þú ert greinilega ágætlega að þér í sögu, þú ættir þá að vita að það gekk ekki nógu vel, samt eru örfá ár að fólk eins og þú var algjörlega á móti því að leyfa bjór á Íslandi. Menn með skoðanir eins og þú voru líka á móti frjálsri fjölmiðlun.

Re: Re: Re: Re: Re: Katta-og dýramál á Íslandi:Viðhorfsbreytingar takk

í Deiglan fyrir 25 árum, 2 mánuðum
Samkvæmt mínum heimildum (Lífið - Líffræði handa framhaldsskólum (bls. 10)) stendur: Nafngiftakerfið: Líffræðingar nota staðlað kerfi þar sem hver lífvera hlýtur tvö latnesk nöfn. Hið fyrra er nafn þeirrar _ættkvíslar_ sem lífveran heyrir til. … Síðara nafnið er heiti þeirrar tegundar sem lífveran heyrir undir. Latneska heitið Homo sapiens er tegundarheiti okkar og þýðir hinn viti borni maður(þetta á við *flesta sem stunda huga.is) Þessi bók er frá '88, hefur þetta nafngiftakerfi þróast eitthvað?

Re: Lögleiðing fíkniefna

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
mAlkAv, ef að fíkniefnaglæpir eru ekki glæpir án fórnarlamba, þá hlýtur áfengissala ríkisins að vera rosalegur glæpur með mörgum fórnalömbum, því það ríkið þarf sko að gjalda fyrir heimsku drykkumannana, og það að reykja sígarettur er því líka glæpur með mörgum fórnarlömbum, á sömu forsemdum og áfengis- og fíkniefnaglæpir. mAlkAv; Segðu mér, hverju skilar bann á fíkniefnum? Er það ekki þannig að um leið og ríkið er að dæla fleiri og fleiri milljörðum ár eftir ár, í þennan svokallaða...

Re: Re: Re: Re: Re: Re: Re: Re: Forsjárhyggjuþingmenn og hnefaleikafrumvarpið

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
þegar þetta fólk er komið á þing, þá getur það gert allan andskotann sem það vill.

Re: Re: Re: Re: Re: Re: Kosningar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
þessar 43.000 kr fara til maka hálaunafólk, fólk sem er með einhverja hundruði þúsunda króna í mánaðartekjur.!

Re: Re: Re: Re: Kosningar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
Það virðist eitthvað hafa dottið út í svarinu. “Framkoma þeirra við öryrkja: Þeir hafa verið að brjóta MANNRÉTTINDI en skammast sín varla” Þeir gerðu akkúrat það sem þeir áttu að gera, þeir fóru eftir dómnum. Ertu kanski að tala um “svartasta dag lýðveldisins” þegar lægtu bætur öryrkja voru hækkaðar úr 18 í rúmlega 43þús kr.? “Framkoma þeira við aldraða: það svívirðilegasta sem þekkist í sérhverju samfélagi er að gefa fullkominn skít í þá sem byggt hafa landið” -ég hef misst af þessu, hvað...

Re: Re: Re: Re: Re: Kosningar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
hvað var það sem davíð gerði eða sagði í garð öryrkja?

Re: Re: Re: Re: Re: Re: Forsjárhyggjuþingmenn og hnefaleikafrumvarpið

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
Einstaklingur sem er háður eiturlyfjum er auðvitað frjáls, hann verður kanski að nota eiturlyfið sem hann varð háður, hann fæddist ekki háður, Íslendingar eru uppfræddir um skaða og fíkn eiturlyfja, sá sem er háður eiturlyfjum, tók einhvern tíman þá ákvörðun að nota þetta, það er honum og engum öðrum að kenna að hann varð fíkill. HANN TÓK ÁKVÖRÐUN UM AÐ NOTA FÍKNIEFNIÐ!! “Markaðskerfið á íslandi sem einkennist af algerri einokun” - Þetta er nú aðalega útaf of miklum ríkisafskiptum, sjáum...

Re: Re: Re: Re: Re: Re: Forsjárhyggjuþingmenn og hnefaleikafrumvarpið

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
mAlkAv; Þarna greinir okkur bara á! - Þú vilt og Kolbrún Halldórsdóttir og aðrir þingmenn hafi vitið fyrir okkur, og það séu þingmennirnir sem viti allt best um allt. Ég vil að hver og einn einstaklingur hafi frelsið til að velja fyrir sig. Lýsi er hollt og gott, það er algjör vitleysa að gera annað en að taka lýsi á hverjum degi. Eigum við ekki að setja lög um að allir Íslendingar eigi að byrja daginn á því að taka lýsi. - Ég segi nei við þessu og öllu öðru, þegar það er farið með fullorðið...

Re: Re: Re: Katta-og dýramál á Íslandi:Viðhorfsbreytingar takk

í Deiglan fyrir 25 árum, 2 mánuðum
já, dýr mega vera á almannafæri, s.s endur, mávar og önnur dýr sem eiga heima úti í náttúrunni, ekki gæludýr eins og hundar og kettir, þeir eiga vera heima hjá eigendunum. Já Jedi, ég er spendýr og maðurinn er auðvitað dýr. En það eiga ekki að gilda sömu lög um Homo Sapiens og aðrar dýra- eða plöntutegundir!

Re: Ég veitt ekki afhverju ég er að þessu.

í Deiglan fyrir 25 árum, 2 mánuðum
ég er persónulega mjög mikið á móti þessum Íslensku þjóðernissinnum (lesist heimkir rasistar). En það væri bara fáranlegt að banna þessi samtök. Come on, risastór meirihluti Íslendinga eru nógu snjöll til þess að hunsa þennan flokk og kjósa hann ekki. Þannig vinnur lýðræðið, ekki með því að banna það sem er í andstöðu við skoðanir sína

Re: Sponsoruð áhugamál BURT!

í Tilveran fyrir 25 árum, 2 mánuðum
og síminn er eign ríkisins, damn… einkavæða símann

Re: Re: Re: Pirrandi atriði

í Deiglan fyrir 25 árum, 2 mánuðum
“Skitakall: þú ert bara einhver reiður innflytjandi, ertu eikkað fúll útaf því að allir eru á móti þér ? allavega, ég er hættur þessu….. nenni ekki að rífast við einhverja svona fávita sem nenna ekki að vakna og sjá raunveruleikann…..” Raunveruleikinn er að Íslendingar eru ekki nógu margir til að vinna alla þessa vinnu sem er í boði núna. Launin hafa verið að hækka gegnum árin. Innflytjendum hefur fjölgað gegnum árin. - Er þetta ekki alger sönnun á því að útlendingar haldi launum Íslendinga...

Re: Re: Re: Re: Forsjárhyggjuþingmenn og hnefaleikafrumvarpið

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
ég hef skrifað greinar um lögleiðingu bæði hnefaleika og eiturlyfja. Og ég sé ekkert að því að lögleiða vændi. Ég held að einstaklingurinn sé hæfari en alþingismenn til að ákveða hvað stuðli að andlegri vellíðan þess einstaklings.

Re: Re: Re: Kosningar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
er fólk ennþá að tala um þessi mannréttindabrot? Eins og ég sagði, þá er þessi tekjutenging búinn að viðgangast lengi, lengi og Össur var meira að segja í ríkisstjórn þegar þetta var einu sinni samþykkt. “Framkoma forsætisráðherra í garð öryrkja var svívirðileg. Hann er að drepast úr valdahroka og fyrirlitningu”

Re: Skítkall fer með fleipur í box greinnini sinni

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
ég biðst afsökunnar á þessum rangindum, þetta er bara eitt að því sem að ég var búinn að heyra í sambandi við ástæður bannsins.

Re: Kosningar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
ég er nemandi í framhaldsskóla, en það ríkið átti ekki að segja bara “Já og amen” við öllum óskum kennara, kröfur kennara voru algjörlega óraunhæfar. Það að bætur öryrkja hafa verið tekjutengdar við laun maka er ekkert nýtt, þetta er búið að vera svona í marga áratugi. Vindhanar í stjórnarandstöðuni eru búnir að öskra og æpa mikið, eins og tildæmis “Vísvitandi stjórnarskrárbrot” Síðan þegar sannleikurinn kemst í ljós, hvað í andskotanum dómurinn þýddi, þá virðast þeir ekki geta sagt það...

Re: Forsjárhyggjuþingmenn og hnefaleikafrumvarpið

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
OK, þessir flutningsmenn frumvarpsins voru að saka andstæðingana um forræðishyggju, en samt vilja þeir ekki lögleiða atvinnumannahnefaleika… Sumir geta alls ekki verið samkvæmir sjálfum sér.

Re: Re: Forsjárhyggjuþingmenn og hnefaleikafrumvarpið

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
AFG; Ef að 2 einstaklingar vilja fara í skotbardaga, þá eigum við ekki að hafa lög til að banna þeim það, þeir vita báðir hver hættan er. og íþróttin “Maður vs. Ljón” á heldur ekki að vera bönnuð, ef að maður vill slást við ljón, Þá eigum við ekki að vera að banna honum það. Mér finnst að lögin eigi að vera til þess að: Vernda einstakling-1 fyrir einstaklingi-2 sem vill vinna einstaklingi-1 skaða. Lögin eiga ekki að vera til þess að einstaklingur-1 skaði ekki sjálfan sig.

Re: Re: Ólypískir hnefaleikar

í Stjórnmál fyrir 25 árum, 2 mánuðum
það skiptir engu máli hvort að það eru margir sem vilja æfa ólympíska hnefaleika eða ekki. Þetta snýst um frelsið til að velja og hafna.

Re: Katta-og dýramál á Íslandi:Viðhorfsbreytingar takk

í Deiglan fyrir 25 árum, 2 mánuðum
kettir og hundar eru gæludýr. Gæludýr eiga að vera á heimilum eða lóðum eiganda, ekki á almannafæri. Jedi; það eiga ekki að gilda sömu lög um dýr og menn.

Re: Re: Re: Re: Re: Re: Re: hehe

í Deiglan fyrir 25 árum, 2 mánuðum
odditie: Við hefðum átt að banna allan innflutning á útlendingum árið 1944, Þá væri sko lífið gott, ef að það væru ekki svona margir innflytjendur á Íslandi, þá væri atvinnulífið ekki svona gott, Íslendingar eru einfaldlega ekki nógu margir til að vinna alla þá vinnu sem er í boði núna, þess vegna þurfum við fleiri innflytjendur sem munu hjálpa okkur að auka og styrkja atvinnulífið. Eru útlendingarnir að halda niðri launum? OK, hvernig er þróunin búin að vera gegnum árin, innflytjendur verða...

Re: Pirrandi atriði

í Deiglan fyrir 25 árum, 2 mánuðum
Odditie: Þú ert andstotans aumingi, Það er ALLTAF fyrirtæki að auglýsa eftir vinnu, ef þú virkilega myndir ÆTLA að fá þér vinnu, þá hefðuru léttilega getað það. Já,hulda, það er alveg fáránlegt að við skulum leyfa nýbúm að vinna hérna. Það er hræðilegt að atvinnulífið hérna sé ekki hrunið vegna mannskorts.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok