Vona að titillinn stimpli mig ekki rasista eða þaðan af verra, en mál eins og þetta (ég vitna í visir.is)
<i>
Lögreglan í Reykjavík sleppti á föstudag úr gæsluvarðhaldi 35 ára alsírskum ríkisborgara sem setið hafði inni frá því 5. janúar vegna meintrar tilraunar til manndráps með hnífi fyrir utan Hróa Hött í Faxafeni.
</i>
*klipp*
<i>
Samkvæmt málaskrá lögreglu hefur árásarmaðurinn oft áður komið við sögu hennar í málum sem varða samkskipti hans við aðra araba hér á landi - 9 sinnum hefur hann verið kærður en sjálfur hefur hann verið kærandi í 5 málum
</i>
*klipp*
<i>
Í frásögn þolandans hefur komið fram að maðurinn hringdi nokkru áður í konu hans þar sem hnífamaðurinn bað hana að skila því að maðurinn vissi hvar þau ættu heima, hvar maður hennar ynni og hann ,,ætlaði að drepa hann“.
</i>
<br>
Mér er spurn, hvers vegna er þessi maður ennþá á landinu? Á ekki fyrir löngu að vera búið að sparka honum burt af þessu skeri okkar?
<br>
Ef þessi maður þykist vera flóttamaður tel ég víst að það eina sem hann sé að flýja sé sín eigin geðheilsa, því það er <b>enginn</b> heilbrigður á geði sem kærður hefur verið 9 sinnum fyrir svona afskipti.
<br>
Ég hef ekkert á móti því að erlendir ríkisborgarar komi hingað og setjist hér að, að því skyldu að þeir hagi sér eins og siðað fólk. Menningarsjokk er engin fjandans afsökun (<b>NÍU</b> sinnum, spáið aðeins í þessu).
<br>
Ég segi eins og var sagt í Stellu í Orlofi með svona menn:
”Út með gæruna!“

”I'm the .sig virus, please put me in yours"
Ford Prefect: “How would you react if I told you I was not from Guildford but from a small planet somewhere in the vicinity of Betelgeuse”