Sko ég er sammála þessum síðustu hér að ofan. Ef þú ert að kvarta núna þá skaltu ekki vera að gera þér upp vonir fyrir næsta stig. Jú við erum nú flest komin í sumarfrí núna (ég fór í mitt á miðvikudaginn klukkan 10:30). En við byrjum líka í skólanum í kringum 20. ágúst! Það er satt hérna með prófin það er stundum 2-3 á dag, ein ritgerð, tvö dreifnámsverkefni (verkefni sem á að skila á netinu) plús svo venjulegur lærdómur. Maður er kannski í skólanum frá 8:10 til 16:20, þá þarf að fara heim,...