Það vantar alveg einn möguleika í þessa skoðanakönnun sem er í gangi núna. Ég virðist alltaf þurfa að svara öllum skoðanakönnunum en þessari get ég ekki svarað. Það er spurt hvort maður ætli að koma með barn árið 2003, en ekki gefinn möguleiki á að svara að maður eigi nú þegar fullt af börnum og sé einfaldlega hættur. Ég á 5 börn elsta er 20 ára en yngsta verður 5 í des svo ég er hætt í barneigninni enda varð ég 40 ára um daginn. Æ fyrirgefið ég bara varð að kvarta yfir þessu þar sem ég get ekki svarað þessari skoðanakönnun og hún kemur alltaf upp sem ósvöruð hjá mér og það pirrar mig ekkert smá. :)
Kveðja StarCat