Fyrir utan þessa keppendur fóru eftirfarandi: Trausti Már, Fjölni, hann keppti við sterkan en aðallega stóran Dana, Alan Petersen og tapaði 6-3 ef ég man rétt en Alan var kominn með tvö og hálft mínustig þannig að þetta var frekar tæpt. Þorri Birgir, Fjölni stóð sig vel á móti Finna sem hét guðmávitahvað. Bardaginn fór 15-13 þannig að þetta var frekar jafnt. Sverrir Ingi, Ármanni, stóð sig mjög vel, tapaði 3-2 gegn sterkum Svía. Magnea Kristín, Fjölni tapaði sínum bardaga 6-0 en tölurnar...