Grein fengin af Taekwondo Ísland www.taekwondo.is

—–

Grandmaster Cho Woon Sup með æfingarbúðir

Grandmaster Cho Woon Sup, 8. dan kemur til Íslands 3 . október, og verður til 6 . október. Hann mun heiðra ÍR-inga með nærveru sinni og mun halda æfingabúðir fyrir félagsmenn. Þetta er stórviðburður og virðingarvert að fá slíkan meistara til landsins.
Æfingarnar byrja strax á fimmtudagskvöld og standa fram á sunnudag. Ásamt kvöldæfingunum verða líka morgunæfingar. Reiknað er með að það verði í kringum 2-3 æfingar daglega. Dagskráin verður strembin en blönduð þannig að allir fái eitthvað við sitt hæfi. Þetta er í annað sinn sem Grandmaster Cho Woon Sup kemur til landsins, en ÍR-ingar fengu hann í heimsókn í febrúar á síðasta ári.

Nánar um heimsókn Grandmaster Cho Woon Sup er að finna á heimasíðu ÍR.
Allt um Grandmaster Cho Woon Sup er að finna á heimasíðu TTU.

Texti: Erlingur Jónsson