…. var að ljúka og gekk það mjög vel enda mættu nánast bara keppendur frá Fjölni fyrir utan nokkra frá Keflavík og Þór Akureyri. Ármann og Ír létu ekki sjá sig, held að einn hafi mætt frá Ármann og einn frá ÍR sem er reyndar afsakanlegt því að ÍR´ingar eru í æfingabúðum Kwanjangnim Cho Woon Sup, 8. dan. Það er vonandi að einhverjir Ármenningar skoði þessa grein og hafi eitthvað að segja um mætingu sína.

Dómarar voru allir frá Fjölni því þau lið sem mættu komu ekki með dómara með sér. Hvað þýðir það ? Jú.. Fjölnir verður gagnrýnt fyrir hugsanlega hlutdrægni sem er allveg glatað því að þeir voru þeir einu sem komu með þjálfara á mótið. Þetta er reyndar þeirra mót en það gildir einu.

Mótið var líka nánast slysalaust fyrir utan eðlileg meiðsl.

Gaman gaman…. meiri mót og meira fólk… !!

Xcalibre