Það var fyrir árshátíðina okkar, að allir í 8.-10. bekk sem höfðu áhuga á að setja upp leikrit fyrir árshátíðina okkar hittust á salnum í (fyrrverandi) skólanum mínum, ásamt leikstjóra. Það voru miklar umræður um það hvað skyldi setja upp og komu margar hugmyndir upp; Konungur Ljónanna, Karamellukvörnin og Grease svo að dæmi séu nefnd. Besta hugmyndin að flestra mati var þó Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner. Þá hófst þó nokkur bið eftir handritinu, en á meðan hittumst við reglulega,...