Þá er fyrstu Triviunni lokið og verð ég að segja að það var frekar léleg þáttaka, bara 4 sem voru með. Við skulum vona að það hafi bara verið af því þetta var fyrsta Trivian. ;)
Ég skal alveg viðurkenna að þetta var frekar erfitt og ætla að reyna að hafa næstu aðeins auðveldari og vonum að það verði betri þáttaka þá.

En stigin voru svona:

Brigton: 10 stig
KolbrunS: 6,5 stig
gvendurf: 6 stig
dala: 3,5 stig

Og hér koma svörin:

1. Hver leikstýrði uppfærslu LA á Ólíver árið 2004? (2) Þetta var að sjálfsögðu Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri LA.

2. Hvaða leikarar eru þetta? (2)[mynd] -Þetta eru Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Guðjón Davíð Karlsson. Gaf hálft stig fyrir Gói.

3. ,,Hvað fleiprar þú um tryggð, sem þér er alls ókunnug. Þú munt iðrast þess. Sjá, hér er einmitt konan sem þú óskar þér." Úr hvaða verki er þetta? (2) -Þetta er úr Draumur á Jónsmessunótt eftir Shakespear, sem Leikfélag Menntaskólans á Akureyri er að æfa.

4. Hver leikstýrði hinum stórskemmtilegu þáttum “Stelpurnar”? (1) -Óskar Jónasson, ekki mikið annað um það að segja.

5. Hver skrifaði Bugsy Malone? (1) -Alan Parker, heldur ekkert annað um það að segja.

6. ,,Hún gerist í leikhúsi, þar sem starfsmenn verða að setja á svið sýningu vegna þess að gagnrýnandi er mættur degi of snemma. Gjaldkerinn, skúringakonan, saumastúlkan, smíðaneminn og málararnir sviðsetja lítið leikrit þar sem Óli smíðanemi og skúrkurinn Keri eru vonbiðlar Önnu saumastúlku. Óli byggir henni hús en skúrkurinn spillir fyrir sem mest hann má." Hvaða leiksýningu er hér lýst? (1) -Þetta er hið stórkostlega leikrit Karamellukvörnin. Ég mæli með því að þið sjáið þessa sýningu ef þið hafið einhverntíman tækifæri til. Stórkostleg skemmtun þrátt fyrir að vera barnaleikrit.

7. Karl Ágúst Úlfsson, Kolbrún Halldórsdóttir, Sunna Borg og Magnús Geir Þórðarsson eru öll menntaðir leikstjórar. Hvað er rangt við þessa fullyrðingu? (1) -Viðurkenni að þessi spurning var mjög ,,trikký". Það er einfaldlega ekkert rangt við þessa fullyrðingu. Þau eru öll menntaðir leikstjórar.

8. ,,Við heitum _____ og _____ og við komum frá Ævintýralandi. Í Ævintýralandi keppast allir við að vera glaðir, góðir og guðdómlegir. Tónlist er þar öllum i blóð borin og stiginn er dans allan daginn alla daga." -Hvaða persónur koma frá Ævintýralandi? (2) -Skoppa og Skrítla. Ég hef aldrei skilið hvað þær eiga að vera. Ætli þær séu ekki bara einhverskonar furðuverur?

9. Hver fékk Grímuna sem sem leikskáld ársins og fyrir hvaða verk? (2)
-Huleikur Dagsson, Forðist okkur.

10. Í hvaða söngleik eru aðalpersónurnar krakkarnir í Rauðu hauskúpunni og Herra Rokk? (1) -Abbababb. Það er sýning sem ég ætla að sjá ef ég get.