Bók, sólarpúður, maskara, ilmvatn og body lotion:) Mig langaði geðveikt í þetta allt saman og hafði tuðað um það í hálfum hljóðum í einhvern tíma þegar ég hélt hann væri ekki að hlusta… Ég tímdi ekki að kaupa þennan maskara, hann var svo dýr, ég ætti ilmvötn þó ég væri komin með ógeð á þeim eins og og svo framvegis:) En kallinn leyndi á sér… Besta jólagjöfin var samt það að komast að því að hann hefur verið að taka eftir því sem mig langaði í:)