Ég einhvernvegin hugsa ekki um rými og þægindi þegar ég sé Toyota Supra. Og síðan hef ég smá toyota fordóma. Mér hefur aldrei fundist Opel Omega vera fallegir bílar og þess vegna hef ég ekkert verið að skoða þá. Og varðandi Sonatuna þá finnst mér þeir vera ansi fallegir en þori bara ekki að kaupa hyundai. Og varðandi BMW 528i sem var talað um þá er þetta einmitt sem ég er að leita af, einhverjum gullmola. Takk fyrir svörin strákar, það má alltaf búast við góðum svörum þegar maður póstar...