Málið er að þegar maður er á svona böllum þá finnst manni maður að hljómsveitin sé oft að spila það sama. En ætli það sé ekki bara því að maður þekkir öll lögin?
Þó svo að ég sé alls ekki aðdáandi Nirvana og sé ekki mikið fyrir þá, þá finnst mér oft þegar ég les gagnrýnir eftir Arnar að hann sé alltof hrokafullur fyrir fjölmiðlamann að vera. Stundum efast ég jafnvel um tónlistargáfur hans eftir að hafa lesið umfjallanir eftir hann.
Skrifar enginn bassaleikarann í Muse á listann sinn?? Þetta eru alveg eitraðar bassalínur sem hann býr til! Og jú Paul McCartney spilaði á trommur í nokkrum lögum á hvíta albúminu þegar Ringo var í fýlu!!!!
Þakka þér fyrir innleggið, veist greinilega meira um þennann magnara en ég…! Þetta getur passað, á honum er annars vegar high output og low output, og svo stendur einhversstaðar á honum 25/50W.
sæll ég ætla að fá hjá þér hvorki meira né minna en 3 pedala! turbo overdrive, flanger og delay. á uppsettu verði bara…. það er líka gott fyrir þig að losna við þetta allt á einu bretti. OK?
þeigiðu sævar…. Matti gítarkennari sem kennir mer og kenndi Jónasi í Amos sagði í gær að það væri ekkert að honum. ég ætti bara að skipta um pickupa ef ég ætlaði að nota hann áfram. en ég þarf ekki á honum að halda því ég er búinn að kaupa Fender stratocaster sem er toppgræja. Rúna
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..