Ég keypti mér xbox þar sem ég er ekki að fýla marioleikina á wii og ég er búinn að vera ánægður með allt… Og sérstaklega þegar ég tengdi hana við netið. Ég bíð spenntur eftir að fá meiri pening svo að ég geti keypt aðeins fleiri leiki.
Afhverju að kaupa tölvu fyrir 60 þúsund kall og leik uppá 7 þúsund kall? Bætt við 21. janúar 2007 - 16:18 Og þetta með xbox, að þú treystir ekki microsoft er bara bull, get ekki séð betur en að xbox sé að standa sig mjög vel… búið að selja 10 milljónir og hún selst ennþá frekar hratt þrátt fyrir að það er ár síðan hún kom út.
Ekkert skemmtilegra en að sjá fólk í skólanum mans að vera að drulla yfir fólk sem fylgir tísku og eyðir pening og tíma í útlit. En hugsar sjálft meira um útlit en allir hinir til samans því það eyðir öllum tímanum í að finna öðruvísi föt, sem eru svo öll eins og grýluleg. Og þegar fólkið byrjar að tuða útaf menn setja gel, vax eða leir í hárið á sér og það taki of langann tíma (sem tekur nokkrar sekúndur), en eru sjálf í hálftíma að finna þessar gömlu tuskur og reyna að láta þær passa saman.
Haha já reyndar. En þegar menn eru að ná í lög, þá lenda þeir oft í að ná í léleg lög og strika út hljómsveitina. Og að mínu mati eru ekki öll lögin á þessum diskum meistaraverk :)
Er sammála tomaskm, en það er alltílæ að hafa beatið dramatískt, en þetta er ekki flott. Getur samt notað þetta píanó, en trommurnar voru ekki að gera sig, ljótt hljóð í þeim líka.
Ótrúlega spennandi mynd, hef sjaldan séð jafn spennandi mynd og þetta er í fyrsta skipti í langann tíma sem maður var ekki viss um hvort að aðalpersónan mundi lifa…. En hún lifði.
En eiga læknarnir ekki að skrá þetta niður þannig að hinir læknarnir geti séð á hvaða lyfjum maður hefur verið á og hvað hefur gerst? Bæði svo að maður þarf ekki að vera 100% á því á hvaða lyfjum maður hafi verið á og til að fyrirbyggja allann misskilning. Það er trúnaður á milli lækna og sjúklings, en aðrir læknar hljóta að geta séð upplýsingar um svona.
Já ég tek þetta alfarið á mig og þetta er mér að kenna. En 3 læknirinn var ekki búinn að gefa mér lyf (og ég sagði ekkert að hann hafi verið búinn að því í svari mínu), heldur var hann að fara að gera það en sá ekkert um það að hinir voru búnir að dæla í mig lyfjum… En það á allt að vera skráð… Og um það fjallar svarið.
Ég efast samt stórlega um að þótt að klámmyndaiðnaðurinn hafi stutt HD-DVD að þá muni þeir vinna útaf þeir völdu VHS fyrir mörgum árum og þeir unnu. En ég held samt að HD-DVD eigi eftir að vinna og ég vona það.
Sammála, það er eins og þeir eru hættir að skrá niður upplýsingar um mann. Ég fór td. til læknis og fékk lyf í sumar, það virkaði enganveginn þannig að ég fór aftur til hans og hann sagði að ég þyrfti bara að vera lengur á því þannig að ég héllt áfram. En það virkaði ekki þannig að ég gafst upp og fór til annans læknis og hann gaf mér 2 mánaðar skammt af öðru lyfi, svo þegar það var búið virkaði það ekki heldur… Svo varð ég veikur og þurfti annað lyf, EN þá höfðu hinir læknarnir ekki sent...
Finnst þetta bara mjög flott, þetta þarf ekki að vera svakalega realistic á meðan þetta kemur vel út. Flott að hafa sterka liti. Það vantar samt rautt í æðarnar á auganu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..