Kæru lesendur, vantar svo ráðleggingar. Núna fyrir um 2 klst var keyrt á köttinn okkar og hann dó. Við vitum eiginlega ekkert hvað tekur við, þ.e. hvað við eigum að gera. Erum búin að koma honum vel fyrir í kassa og þess háttar og ætlum að hringja á Dýraspítalann strax um leið og það opnar en er einhver sem les þetta sem hefur einhver ráð eða getur sagt okkur hvað gerist næst. Get bara ekki beðið þangað til í fyrramálið…svakaleg sorg á heimilinu núna.