Ég er sammála þér um að Þórsmörk sé falleg. En mér finnst og mikil traffík þarna en landverðinir eru að gera ótrúlega góða hluti þarna með að halda þessu svona hreinu og fínu. Ég treysti mér ekki að dæma um einhvern sérstakan stað, heldur er bara allstaðar fallegt þegar maður er alltaf í borginni. til dæmis finnst mér rosalega fallegt á Reykjanesinu sem er að ég held vanmetnasta svæði á landinu. Og smá innskot, Básar eru ekki í Þórsmörk, heldur eru þeir í Goðalandi.