Jólabaksturinn: Setjið hellu á eldavélinni á lítinn straum. Stráið á heita helluna teskeið af negul, kanil og engifer… sópið fljótt af aftur … og Bingó! Bökunarlyktin komin. Kaupið pakka af Homeblest með súkkulaði, skellið örstutt í örbylgjofninn nokkrum kexkökum (muna að taka þær fyrst úr pakkanum) og fyrsta umferð í jólabakstrinum er fullkomin. Restina kaupið þið í næsta bakarí og setjið í fallega bauka… það er ekki nokkur maður sem sér muninn. (nema þeir sem hafa notað sömu uppskrift : )...