Sko, málið er. Heimurinn hefur engin föst takmörk, ég tel svo að heimurinn endi hvergi. Málið er, þetta er ekki satt með tímann og endalausa orku. Það er rétt það sem einhver hér fyrir ofan segir, að orka breyti aðeins um ham, orkan breytist í eitthvað annað. En þú getur ekki safnað orkunni aftur til að skapa jafn mikla orku og áður var. Þannig að fyrr eða síðar mun sólin deyja út, og við munum ekki geta gert neitt í því. Það mun líka koma að því að engin pláneta í alheiminum verður lifandi....