Þetta byrjaði alltsaman í morgun. Íslensku kennarinn minn fjarverandi sem þýddi tveggja klukkutíma eyðu.
Ég fer heim, bý til poppkorn og tek upp eina kókdós. Fer svo niður í kjallarann þar sem herbergið mitt er og kveiki á skjánum. Kveiki þarnæst á græjunum og virki aukahátalarana.

Næst ræsi ég winamp og gameamp. Finn þar eitthvað gott lag á mínum miðlungsstóra playlista.

Hækka nokkuð mikið í græjunum, allt þar til hördudiskarnir á hyllunum byrja að glamra. Það er magnað hvað bassahljóð magnast í kjallaranum.

Örbylgjuofninn byrjar að tísta, poppið greinilega tilbúið. Ég refresha All Seeing Eye og hleyp upp til að ná í poppið. Lyktin fyllir vitin og ég kemst í frábært skap. Nú skal sko
blasta.
Hleyp niður með poppið og sest við tölvuna í þann mund er ASE er að klára að refresha íslensku leikjaþjónana. Leita mér að 16 manna server og vel mér Margmiðlun C
þjóninn.

Kem inn á serverinn sem “izelord”, best að setja upp klantaggið svo maður sleppi við óþarfa spurningar.

Console -> messagemode name -> Synergy ~ izelord

Frábært, núna er ég tilbúinn, mappið er de_dust og tölvan velur CT handa mér.
Næ strax byrjuninni á roundinu, kaupi mér ekki neitt og hleyp beint áfram, beygji til hægri og strax til vinstri…. kominn inn í lobby. Held áfram að hlaupa.
Kem út úr lobbyinu og hnýg dauður niður.

Hestaridillinn killed Synergy ~ izelord with awp

Frábært, ég var samt síðastur til að deyja þannig að næsta round byrjar strax.
Endurtek sama strattið, kaupi ekki neitt og rusha lobby.
Það virkar ekki vel og er drepinn með AK af gaur sem ákvað að kampa bakvið kassa inni í lobby.

Þetta endurtekur sig nokkum sinnum.

Þegar ég er kominn með 16k kaupi ég nokkur stk M4/colt sem ég skil eftir á spawn handa teammates, kaupi deagle handa sjálfum mér og rusha lobby.
Staðan mín er núna komin í 3-14… ekki amalegt það.

Þá byrjar það, gaurinn sem drap mig með hjálp við þriðja mann skrifar í say.
“haha, izelord ownadur, thu sokkar”

Haha, hugsa ég með mér og ýti nokkrum sinnum á F9 þar eð ég nenni ekki að hlusta á einhver vælulög úr Titanic.

Í næsta roundi fæ ég svo aftur comment.
“izelord ekki ad ganga vel”

Nei, greinilega ekki, mér gengur ekki vel. Kominn með 4-15.

Svona heldur þetta basically áfram, í gegnum næstu möpp.
Fólk heldur áfram að commenta á spilagetu mína og kemur með miður falleg orð í garð minn. Ekki hef ég hugmynd afhverju þar eð ég er frekar mikið freefrag með þessu rushi mínu.
Fólk bitchar greinilega þegar það er eygnað.
Fólk bitchar greinilega þegar það eygnar einhvern annan.

Frábært mórall, frábært community.

Svo þegar fólk byrjar að efast um getu mína til að vera meðlimur Synergy byrjar góða skapið að dofna. Fæ skít á borð við:
“izelord noob, thu att ad campa”
“hahaha 8-23, thu sokkar, hvernig komstu i synergy”

Svo held ég að botninum hafi verið náð þegar teammate sagði “izelord, BJ”. Spurði hann hvort þetta tengdist eitthvað “Bad Job” og fékk játun.

Málið er að ég nenni ekki að spawn campa eða campa ventin eins og svo margir gerðu í de_prodigy.

Þá leitaði ég mér að öðrum server og fór inn á, nennti ekki að hanga með fólki sem kunni ekki að meta að fá frítt fragg í skorið sitt sem er það eina sem fólk hugsar um á public.
Kominn inn á annan server og fæ frábært komment beint í andlitið.
“neisko, kemur izelord noob”

Núna er búið að skemma góða skapið mitt og skrifa ég því þessa grein. Hélt að það væri til eitthvað CS samfélag… sem var greinilega rangt hjá mér. Kannski hefði maður gert rétt í að halda sig bara áfram við quake. Þar er samfélagið þó skemmtilegt.

Ég er nokkuð viss um að þetta er ástæðan fyrir altnick notkun á serverum nútildags. Sé mjög sjaldan realnick notkun á serverum.

Hvernig væri að þroskast aðeins og leyfa öðrum spilurum að spila í friði, hætta að teamkilla og rífa kjaft á public. Komum fram við andstæðinginn eins og við viljum að hann komi fram við okkur.

Good luck and have fun, ég er farinn aftur í skólann.
Það besta sem guð hefur skapað er nýr dagur.