Sex í Inspector í MA Nú er framboðsfresti lokið og ljóst hverjir munu berjast um embætti skólafélagsins Hugins (Menntaskólanum á Akureyri) í komandi kosningum. Alls eru 36 komin í framboð en enn vantar í nokkrar stöður. Í embætti Inspector scholae, formanns hugins bárust sex framboð og ljóst að þar verður hörð barátta. Það eru Atli Þór Ragnarsson 3F, Borgný Skúladóttir 3T, Guðbjörg Thelma Traustadóttir 3U, Halldóra Víðisdóttir 3F, Helgi Hrafn Halldórsson 3X og Ólafur Sindri Ólafsson 3G.